156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[19:06]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni fyrir andsvarið. Ég tel að þetta sé ágætlega skýrt í minnisblaði fjármálaráðuneytisins þar sem birt er tafla um hvernig málin hafa þróast. Ég hef verið að benda á hvort það hefði kannski mátt gefa sér aðeins meiri tíma í þetta mál, fara t.d. yfir þetta minnisblað frá ráðuneytinu, þær áhyggjur sem þar koma fram. Þar kemur skýrt fram hvernig þróunin hefur verið frá árinu 1997, í töflu sem er birt, og ráðuneytið telur að þær breytingar sem eru lagðar til muni ekki draga úr þessu. Fyrst og fremst er verið að gera athugasemdir við að viðvörunarbjöllur sem klingja, frá fjármálaráðuneyti, verkalýðsfélögum, Samtökum atvinnulífsins og fleirum, séu hunsaðar — hvort þetta sé ekki af þeirri stærðargráðu, miðað við þann kostnað sem metinn er, einmitt í minnisblaði fjármálaráðuneytisins, að það hefði þurft betri yfirlegu og betri yfirferð. Það er það sem ég er að gagnrýna. Mér brá þegar menn létu þá gagnrýni sem kom fram í minnisblaði ráðuneytisins sem vind um eyru þjóta; það var ekkert gert með hana. Það er það sem mér finnst einkennilegt. Ég bendi líka á að í þessu minnisblaði kemur það fram hvernig þessi mál hafa þróast. Ef gera þarf breytingar á einhverjum sértækum hópi, sem þarf þá að skilgreina, hefði kannski verið hægt að finna aðrar leiðir og gefa sér betri tíma.