156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[19:08]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Förum aðeins út í þann kostnað sem af þessu hlýst, ef við eigum að tala um kostnað. Þetta eru aukin útgjöld ríkisins til að styðja við hóp sem oftar en ekki er í erfiðustu stöðunni í samfélaginu, er í viðkvæmri stöðu; fólk sem ekki hefur getað og getur ekki starfað á vinnumarkaði, og það er ekki valkvætt. Það hryggir mig gríðarlega í þessari umræðu þegar talað er um valkvæði eða að fólk velji að fara á örorkulífeyri. Það er af og frá. Fólk er ekki að velja sér þetta. Þetta er staða sem kemur upp hjá fólki.

Það eru svo sannarlega aukin útgjöld af þessu máli og eins og kemur fram í greinargerð frumvarpsins þá erum við að tala um 3–4 milljarða á ári. Það er auðvitað mikilvægt að það sé verið að grípa inn í og tryggja að fólk fylgi því sem gerist í samfélaginu, en launavísitala er að mæla launaþróun í landinu, samanber það sem kemur fram í lögum um almannatryggingar um að það eigi að fylgja launaþróun. Það er verið að gera það. Það er verið að reyna að hnykkja á því að það eigi að fylgja þessu. Ég held að það sé bara gríðarlega mikilvægt að við áttum okkur á þessu og mikilvægt að við fylgjum þeirri launaþróun sem verður á markaði. Það kom fram hjá öðrum hv. þingmanni að það væri óheppilegt að hafa sjálfvirkar tengingar og það kemur fram í breytingartillögu hv. þingmanns. (Forseti hringir.) En telur hv. þingmaður mikilvægt að falla frá því að tryggja þessum hópi þessa þróun eins og aðrir fá? Er það virkilega málið?