156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[19:11]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Við erum öll sammála um að það þarf að standa vel við bakið á þeim sem höllustum fæti standa í samfélaginu okkar. Ég segi það bara hér í þriðja sinn í dag, held ég. Við viljum styðja vel við þá sem ekki geta unnið en það sem okkur greinir á um er hvernig best er að gera það. Það er það sem málið snýst um. Það má ekki gera á sama tíma lítið úr kostnaði. Við viljum leggja út í þann kostnað sem þarf fyrir þá sem höllustum fæti standa en ef hliðaráhrif verða þannig að það sé, eins og ráðuneytið er að benda á, um milljarða hækkun að ræða á hverju ári og bent er á að það mætti fara aðra leið, þá spyr maður sig bara hvort það hefði ekki þurft að fara aðeins betur ofan í þetta. Við erum öll sammála um að það þarf að styðja vel við þá sem höllustum fæti standa og það hefur enginn sagt það í dag að einhver velji sér að fara á örorku. Það er einungis verið að segja það að með þessu kerfi er varað við því að hvatinn til að fara í virkni og vinnu minnkar mikið og það hefur auðvitað sín áhrif á einhverja. Það skal bara ekkert litið fram hjá því. Það er búið að koma á kerfi sem er hvetjandi til virkni. Það hefur gefist ágætlega og við þurfum að finna leið þar sem helst í hendur að stutt sé enn betur við þá sem helst þurfa á því að halda sem geta ekki farið í virkni en um leið sé ástunduð ábyrg fjármálastjórnun.