156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[19:13]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál sem snýr að grundvallaratriðum í velferðarkerfi okkar; hvernig við uppfærum bætur almannatrygginga og hvernig við tryggjum að þær fylgi eðlilegri þróun til framtíðar. Markmið frumvarpsins er augljóst og verðugt; að verja þá sem minnst mega sín fyrir því að dragast aftur úr. Við í Sjálfstæðisflokknum stöndum alltaf vörð um aðstoð við þá sem búa við skerta getu til að afla tekna. Við trúum á öflugt öryggisnet fyrir þá sem þess þurfa en öryggisnetið verður að vera sjálfbært, sanngjarnt og í samræmi við aðrar stoðir samfélagsins. Því spyr ég: Gerir þetta frumvarp það?

Virðulegi forseti. Í umræðunni hefur verið dregin upp mynd af frumvarpinu sem einföldu réttlætismáli. Í reynd eru hér til umræðu grundvallarbreytingar á sjálfvirkum tengingum bóta og þær breytingar hafa víðtæk áhrif. Með frumvarpinu er verið að festa í sessi að bætur almannatrygginga fylgi launavísitölu frekar en neysluvísitölu. Slíkt er í andstöðu við þau sjónarmið sem byggt hefur á um árabil og hefur gefist vel. Bætur hafa ávallt verið tryggðar gagnvart verðbólgu en ekki þannig að þær elti launaþróun óháð afkomu og getu ríkissjóðs.

En af hverju? Vegna þess að launavísitalan er ekki aðeins mælikvarði á verðmætasköpun heldur líka á kröfur og samningsstyrk í kjaraviðræðum. Hún er í eðli sínu háð mörgum þáttum, m.a. samningum á vinnumarkaði, auknum kröfum stéttarfélaga og stundum pólitískum ákvörðunum um opinber laun. Ef bætur eiga að fylgja slíku þróunartæki þá erum við að segja að skattgreiðendur eigi að fjármagna aukin lífsgæði bótaþega óháð verðbólgu, óháð getu og óháð því hvort hækkunin sé til komin vegna verðmætasköpunar eða samningsstyrks. Það er stór ákvörðun og það er ekki sjálfgefið að hún sé rétt.

Virðulegi forseti. Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð hafa lýst áhyggjum sínum af frumvarpinu og á það hlýtur að vera hlustað. Þær benda á að slík tenging geti aukið verðbólguþrýsting, hækkað opinber útgjöld til muna, grafið undan hvötum til þátttöku á vinnumarkaði og valdið því að fólk velji að vera utan atvinnulífs vegna þess að bætur eru orðnar sambærilegar eða hærri en lægstu laun. Við vitum öll hvað gerist þegar slíkt misvægi festist í sessi. Við veikjum sjálfan grunninn undir velferðarkerfinu sem byggir á vinnu, verðmætasköpun og ábyrgri forgangsröðum. Við í Sjálfstæðisflokknum teljum að bætur eigi að vera sanngjarnar; að þær megi ekki raska jafnvægi á milli þeirra sem vinna fyrir launum sínum og þeirra sem fá bætur úr sameiginlegum sjóðum. Öll samkennd og samhygð verður að fara fram á grunni ábyrgðar.

Virðulegi forseti. Það er líka annað sem skiptir miklu máli í þessari umræðu: Það er hver leiðir launaþróun í landinu. Við þekkjum það frá Norðurlöndunum að þar er það almenni markaðurinn eða útflutningsgreinarnar sem setja tóninn í launaþróun og opinberir aðilar fylgja í kjölfarið. Þar er skýr meginregla um að opinber fjármál elti afkomu og getu en ekki öfugt. Hér á landi er því oft öfugt farið, því miður. Opinberar stéttir hafa ítrekað leitt launaþróunina, stundum með miklum hækkunum eins og gerðist nýlega þegar kennarar fengu ríflega 25% hækkun umfram það sem almenni markaðurinn hafði samið um. Ef við bætum nú við að bætur eigi að hækka í takt við slíkar hækkanir þá erum við að búa til keðjuverkun sem enginn kemur til með að ráða við. Slíkt er ekki ábyrgt. Slíkt er hættulegt.

Virðulegi forseti. Við megum heldur ekki gleyma því að þessi breyting kostar og hún kostar mikið. Um er að ræða áætlaðan útgjaldaauka ríkisins upp á 3–4 milljarða á ári. Þetta er ekkert smáræði. Þetta eru fjármunir sem annars gætu farið í að styrkja sjálft almannatryggingakerfið með mun markvissari hætti. Við verðum að spyrja okkur: Ef við höfum 3–4 milljarða kr., er þá skynsamlegast að festa sjálfvirka hækkun á öllum bótum sem fylgja launavísitölu, óháð aðstæðum, óháð aðkomu og óháð því hvort þörfin sé sú sama hjá öllum? Eða ættum við fremur að nýta þá fjármuni til að bæta kjör þeirra verst stöddu markvisst, t.d. með hækkun á frítekjumörkum, tekjutengdum viðbótum eða stuðningi við barnafjölskyldur og öryrkja með mikla þörf?

Virðulegi forseti. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf lagt áherslu á það að aðstoð hins opinbera fari þangað sem þörfin er mest og að hún byggist á skynsemi, sjálfbærni og jafnræði. Við höfum ekki stutt víðtækar sjálfvirkar tengingar sem draga úr möguleikum ríkisvaldsins til að forgangsraða og bregðast við breyttum aðstæðum. Það er skylda okkar sem þjóðkjörinna fulltrúa að gæta langtímahagsmuna, ekki aðeins þeirra sem eru háðir kerfinu í dag heldur líka þeirra sem eiga að fjármagna það í framtíðinni. Því ber að hafna lausnum sem eru óskilvirkar, ómarkvissar og geta grafið undan hvötum til virkni og vinnu.

Virðulegi forseti. Við í Sjálfstæðisflokknum tökum undir það markmið að enginn eigi að dragast aftur úr en við verðum líka að vera heiðarleg við þjóðina. Stjórn efnahagsmála krefst ábyrgðar. Við erum ekki í þeirri stöðu að geta gengið að endalausum hækkunum sem sjálfsögðum hlut án tillits til verðbólgu, vaxta og stöðu ríkisfjármála. Við teljum rétt að málið verði endurmetið í heild sinni með hliðsjón af þeim grundvallarþáttum sem skipta mestu máli. Fyrst og fremst þarf að huga að því hvernig við getum beint stuðningi með markvissari hætti að þeim einstaklingum sem raunverulega þurfa mest á honum að halda. Það er ekki sjálfgefið að almennar sjálfvirkar hækkanir þjóni þeim tilgangi, þvert á móti þarf stundum nákvæmari nálgun en það.

Við verðum jafnframt að tryggja að kerfið hvetji áfram til þátttöku á vinnumarkaði. Velferðarkerfið á ekki að draga úr vilja fólks til vinnu heldur styðja við virkni og sjálfstæði. Það krefst varkárni þegar kemur að hlutfallslegum mun milli bóta og lægstu launa. Jafnframt er brýnt að varðveita eðlilegt jafnvægi milli þeirra sem vinna og greiða til sameiginlegra sjóða og þeirra sem fá bætur úr þeim sjóðum. Þetta jafnvægi er forsenda fyrir trausti í samfélaginu.

Að lokum, virðulegur forseti, þá verðum við að huga að heildinni og að við séum að byggja og efla, sjálfbært og traust velferðarkerfi, ekki aðeins fyrir daginn í dag heldur til lengri tíma. Það krefst skynsemi, forgangsröðunar og ábyrgðar í ákvörðunum löggjafans.

Virðulegi forseti. Við eigum sameiginlegan vilja til að bæta hag þeirra sem standa höllum fæti en góð markmið verða að styðjast við vandaða útfærslu, efnahagslega ábyrgð og skýra forgangsröðun. Sjálfstæðisflokkurinn mun halda áfram að vinna að því með ábyrgð og raunsæi að leiðarljósi.