156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[19:24]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég verð að segja að mér finnst mjög miður að hv. þingmaður hafi ekki hlustað á ræðu mína og hafi einhvern veginn skilið hana sem svo að ég sé að tala niður til öryrkja. Það var ég alls ekki að gera nema síður sé og tók fram oftar en einu sinni í ræðu minni að við Sjálfstæðismenn viljum styðja við öryrkja en við viljum líka tryggja það að velferðarkerfið okkar og það kerfi sem við höfum byggt upp í kringum almannatryggingar sé öruggt og valdi rekstri ríkissjóðs ekki alvarlegum þunga. Við höfum margoft talað um það hér í þessum sal og á síðasta ári þegar samþykkt var frumvarp um breytingar á lögum er varða örorku, að við viljum eiga hér örorkukerfi eða almannatryggingakerfi þar sem er innbyggður hvati fólks til þess að reyna fyrir sér á vinnumarkaði og að kerfið grípi fólk. Sem betur fer er það þannig að mjög margir þurfa á þessari aðstoð að halda tímabundið og þá grípur kerfið fólk tímabundið. En við eigum líka mörg virkniúrræði eins og t.d. hjá VIRK til að hvetja fólk og styðja við fólk út á vinnumarkaðinn á nýjan leik. Við verðum að hafa það í huga að þeir sem bera uppi þetta kerfi eru launamenn í landinu og þess vegna segi ég að það er varhugavert að hér sé verið að tengja hækkun bóta við launavísitölu þar sem þróun hennar hefur verið með öðrum hætti heldur en neysluvísitölunnar.