156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[19:27]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er gott að heyra að þingmaðurinn vilji styðja öryrkja og bæta stöðu þeirra sem ég tel vera alveg gríðarlega mikilvægt. Það er ánægjulegt auðvitað að við á okkar fyrri starfsvettvangi höfðum aðkomu að því virkniúrræði sem VIRK Starfsendurhæfingarsjóður er að vinna í dag og skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli til að auðvelda fólki að komast aftur á vinnumarkað ef það missir starfsgetuna, að reyna eins og mögulegt er að hjálpa fólki að ná aftur virkni. Þetta skiptir sköpum en á sama tíma, þegar fólk nær ekki aftur virkni, sem því miður gerist og er staðreynd, þá viljum við að fólk festist ekki í fátæktargildru og viljum tryggja að tekjur þeirra verði nægar.

Hin hliðin á peningnum er síðan þessi, eins og kom fram í ræðu hv. þingmanns, að með því að láta þessar greiðslur og þessar upphæðir ekki fylgja því sem gerist á markaði — og rekstur ríkissjóðs skiptir máli, það skiptir mjög miklu máli að við forgangsröðum þar þannig að við rekum hann á góðan hátt — þá auðvitað veltir maður fyrir sér: Er þetta hópurinn að mati þingmanns sem á að bera þessar byrðar stöðugleika samfélagsins? Ef við getum ekki séð af, ja, 1% til viðbótar í þennan málaflokk á ári væri ekki bara betra að forgangsraða þá þannig samt sem áður að við styðjum við bakið á þessum hóp og sækjum tekjur til að auka tekjur ríkissjóðs á annan hátt til að forgangsraða í þennan málaflokk?