156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[19:29]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni hans seinna andsvar og verð að ítreka að ég veit ekki af hverju hann hlustaði ekki á ræðu mína hér áðan. Sjálfstæðisflokkurinn stendur með velferðarkerfinu og hefur verið aðalhvatinn í íslensku samfélagi til að byggja upp velferðarkerfið eins og við þekkjum það hér á landi. Hv. þingmaður hefur, eins og sú sem hér stendur, tekið þátt í samningum á vinnumarkaði og ég held að hann þekki það mætavel sem fyrrum formaður í launþegasamtökum að heildarsvigrúm til launahækkana ákvarðast af verðbólgumarkmiðum og svo framleiðnivexti. Það hefur verið að jafnaði á síðasta ári 3,5–4%. Síðan sjáum við að launavísitalan hefur verið allt að 6,7%. Þetta hefur valdið þrýstingi á allan vinnumarkaðinn sem hv. þingmaður þekkir mjög vel. Ég ætla að fá að lesa aftur bara úr ræðu minni: „Við í Sjálfstæðisflokknum teljum að bætur eigi að vera sanngjarnar“, það sagði ég áðan, hv. þingmaður. En þær mega ekki raska jafnvægi á milli þeirra sem vinna fyrir launum sínum og þeirra sem fá bætur úr sameiginlegum sjóðum. Það er jafnvægi þarna á milli og það hlýtur hver maður að sjá að það er hættuleg og varhugaverð þróun ef bætur almannatrygginga eru orðnar hærri en lægstu laun í landinu. Þá er farinn hvati í kerfinu til að fólk sé á vinnumarkaði og það tel ég varhugavert.

Við höfum alla tíð í Sjálfstæðisflokknum talað markvisst fyrir því að við viljum styðja vel við þá sem þurfa mest á stuðningi að halda og það var það sem ég sagði einnig í ræðu minni, að við eigum að horfa betur til þeirra.