kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík o.fl.
Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík og lögum um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Hér er um framlengingu fresta að ræða.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024, og lögum um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, nr. 130/2024. Breytingarnar fela í sér framlengingu á fresti annars vegar til að sækja um kaup á íbúðarhúsnæði og hins vegar til að sækja um stuðningslán rekstraraðila. Ég endurtek, frú forseti, að hér er verið að tala um framlengingu á fresti annars vegar til að sækja um kaup á íbúðarhúsnæði og hins vegar til að sækja um stuðningslán rekstraraðila. Um það fjallar þetta mál.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Nefndin fjallaði um hollvinasamning Þórkötlu við einstaklinga sem selt hafa fasteignafélaginu íbúðarhúsnæði sitt. Slíkur samningur veitir hollvini heimild til að nota íbúðarhúsnæði innan tiltekinna marka. Nefndin fjallaði sérstaklega um aðgengi hollvina að eignunum og þá takmörkun að óheimilt væri að dvelja í þeim yfir nótt af öryggisástæðum. Nefndin fagnar því að á meðan málið var til meðferðar hjá henni var tekin sú ákvörðun hjá fasteignafélaginu Þórkötlu að heimila hollvinum að gista í eignunum yfir sumartímann, þ.e. til 30. september 2025. Nefndin telur brýnt að hollvinir sem nýta sér heimild til gistingar verði upplýstir tímanlega um framhaldið eftir 30. september. Jafnframt komu fram upplýsingar fyrir nefndinni að hollvinum verði ekki gert að flytja innbú sem nýtt var yfir sumartímann til baka. Nefndin telur mikilvægt að Þórkatla leiti leiða til þess að heimild til gistingar verði framlengd. Þá hvetur nefndin Þórkötlu áfram í þeirri vinnu að móta fyrirkomulag sem tryggir að þeir sem þess óska geti með fyrirsjáanlegum hætti snúið til baka í eignirnar.
Nefndin tekur jafnframt fram að margar umsagnir lúti að atriðum sem ekki falla undir efni frumvarpsins, t.d. önnur stuðningsúrræði til fyrirtækja. Að því gættu leiða þær ekki til að nefndin geri tillögu um breytingar á frumvarpinu.
Þá áréttar nefndin að markmið laganna um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík er að verja fjárhag og velferð íbúa bæjarins og því er mikilvægt að hafa hliðsjón af því við skýringu 3. mgr. 1. gr. laganna þannig að vafatilvik verði ávallt skýrð í til samræmis við það, eins og meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar tók fram í áliti sínu við meðferð frumvarps þess sem varð að lögum nr. 16/2024.
Jafnframt fjallaði nefndin um þær fáu umsóknir einstaklinga um húsnæðiskaup sem fengið hafa synjun. Nefndin beinir því til stjórnvalda að taka þær til skoðunar.
Að lokum fjallaði nefndin um 1. tölulið 2. mgr. 7. gr. laga nr. 16/2024 sem kveður á um að fasteignafélagið Þórkatla sé undanþegið fasteignagjöldum vegna þeirra fasteigna sem keyptar eru á grundvelli laganna. Umrætt ákvæði fellur ekki undir efni þess frumvarps sem hér er til meðferðar. Nefndin undirstrikar þó að stjórnvöld þurfa að hafa framangreint í huga.
Nefndin leggur til eina breytingu á frumvarpinu þess efnis að frestur til að sækja um kaup á íbúðarhúsnæði samkvæmt lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík verði framlengdur út árið 2025. Er lögð áhersla á þetta atriði.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að um 40–50 heimili séu eftir sem geti sótt um kaup samkvæmt lögunum og þar með nýtt sér framlengingu frestsins. Í umsögnum sem nefndinni bárust komu fram sjónarmið um að fresturinn ætti að vera lengri en til 1. júlí nk. eins og frumvarpið kveður á um. Tekið var fram að sumir eigendur hefðu ekki enn gert upp hug sinn um hvort þeir ætluðu að óska eftir kaupum. Jafnframt gæti lengri frestur haft það í för með sér að færri af þeim sem eftir stæðu myndu óska eftir kaupum en ella.
Nefndin fellst á framangreind sjónarmið og telur að gefa verði íbúum Grindavíkur frekara svigrúm til ákvarðanatöku.
Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Arna Lára Jónsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Pawel Bartoszek og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. Hv. þingmenn Vilhjálmur Árnason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir rita undir álitið með fyrirvara.
Frú forseti. Það var ánægjulegt að vinna í nefndinni með þetta mál vegna þess að ekki einasta tók nefndin vel utan um málið heldur leitaði víða álits og var tilbúin að breyta eftir því sem fleiri upplýsingar bárust henni. Þetta mál fjallar um framlengingu á þeim frestum sem hér um ræðir til að sækja um kaup á íbúðarhúsnæði og hins vegar til að sækja um stuðningslán rekstraraðila, það fjallar í sjálfu sér ekki um annað, en nefndarmönnum fannst mjög mikilvægt að leggja áherslu á ýmis önnur mál sem koma að þessu vegna þess að hugur þeirra, ég held að ég tali fyrir hönd nefndarinnar, hugur nefndarmanna allra var og hefur verið hjá Grindvíkingum og þeim sem þar rækja störf og halda úti atvinnustarfsemi. Þetta mál er ekki komið á endastöð, það er langur vegur frá vegna þess að Alþingi, löggjafarvaldið og eftir atvikum framkvæmdarvaldið sömuleiðis verða að taka á þessum málum inn í framtíðina, koma til móts við Grindvíkinga á mörgum sviðum eftir sem áður og hlúa að þeirri uppbyggingu sem þar verður vonandi á komandi árum. Sá sem hér stendur mun ekki láta sitt eftir liggja í þeim efnum og ég tala fyrir hönd, að ég held, allrar nefndarinnar þegar kemur að því að þetta er ekki endapunktur á störfum efnahags- og viðskiptanefndar hvað varðar Grindavík og Grindvíkinga og það samfélag sem þar vonandi verður blómlegt á komandi árum og áratugum.