156. löggjafarþing — 63. fundur,  16. júní 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

253. mál
[21:13]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Grímur Grímsson) (V):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993, rekstur líkhúsa.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993. Breytingarnar lúta annars vegar að því að lögfest verði heimild fyrir kirkjugarða til að innheimta gjald fyrir geymslu líka í líkhúsi og hins vegar er lagt til að kirkjugarðsstjórn verði heimilt að taka frá grafarstæði lengur en til 50 ára þegar eftir því er leitað og sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega:

Með frumvarpinu er verið að bregðast við erfiðri rekstrarstöðu sem skapast hefur hjá þeim kirkjugörðum sem reka líkhús hér á landi á grundvelli laganna. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu hefur rýmum í líkhúsum landsins farið fækkandi samhliða fjölgun andláta sem má m.a. rekja til hækkandi aldurssamsetningar þjóðarinnar og aukins mannfjölda. Haustið 2024 ráku aftur á móti einungis tveir kirkjugarðar á landinu fullbúin líkhús, þ.e. Kirkjugarðar Reykjavíkur og Kirkjugarðar Akureyrar. Rekstrarvandi kirkjugarða vegna líkhúsa hefur verið viðvarandi um árabil en árið 2004 var farið að innheimta gjald fyrir geymslu líka. Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 2006, í máli nr. 4417/2005, var hins vegar komist að þeirri niðurstöðu að lagaheimild skorti til slíkrar innheimtu og var því í framhaldinu hætt að innheimta gjaldið. Í ljósi alvarlegrar rekstrarstöðu líkhúsa telur meiri hlutinn áríðandi að bregðast við og styður tillögu frumvarpsins um að veita heimild til að innheimta gjald vegna geymslu líka í líkhúsum svo unnt sé að tryggja áframhaldandi rekstur þeirra.

Meiri hlutinn ávarpaði í áliti sínu athugasemdir í umsögn Sorgarmiðstöðvarinnar varðandi það að innheimta gjaldsins vegna geymslu líka væri í raun skattlagning og fór yfir greinarmuninn á sköttum og þjónustugjaldi í þessu samhengi. Vísar meiri hlutinn til umfjöllunar í nefndaráliti hvað þetta varðar.

Nefndin fjallaði um heimild til að taka frá grafarstæði til lengri tíma ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Meiri hlutinn telur afar mikilvægt að veita kirkjugarðsstjórn heimild til að taka frá grafarstæði til lengri tíma en 50 ára ef eftir því er leitað og sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, líkt og í tilvikum þar sem foreldrar missa barn sitt ungt að aldri. Það sé því afar mikilvægt að umræddar breytingar á grundvelli frumvarpsins nái fram að ganga.

Nefndin fjallaði að auki um mikilvægi þess að heildarendurskoðunar á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu færi fram. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í umsögnum og greinargerð með frumvarpinu þess efnis að tímabært sé að fara í heildarendurskoðun á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993, sem og að endurskoða samkomulag ríkis og kirkjugarðaráðs um framlag úr ríkissjóði til starfsemi kirkjugarða frá árinu 2005. Innan þeirrar endurskoðunar verði m.a. lagt á það mat hvort aðrar leiðir séu jafnframt færar hvað varðar rekstrarvanda líkhúsa kirkjugarðanna.

Meiri hlutinn bendir á að lokum að á þskj. 312 liggi fyrir breytingartillaga við fyrirliggjandi frumvarp sem varðar dreifingu ösku. Meiri hlutinn telur tillöguna ekki samræmast efni eða markmiði frumvarpsins, sem varðar einkum rekstur líkhúsa, en beinir því til dómsmálaráðuneytis að við heildarendurskoðun verði jafnframt lagt á það mat hvort tilefni sé til að rýmka heimildir á grundvelli laganna til dreifingar ösku. Meiri hlutinn telur að það sé tímabært að endurskoða lögin heildstætt svo þau taki mið af þróun samfélagsins og endurspegli þær þjóðfélagsbreytingar sem orðið hafa undanfarin ár og áratugi.

Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Heiða Ingimarsdóttir og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.

Herra forseti. Frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra sem við fjöllum hér um hefur í grunninn tvö markmið. Í fyrsta lagi að gera rekstraraðilum líkhúsa mögulegt að innheimta sanngjarnt gjald fyrir geymslu líka þó svo að ekki sé gert lítið úr því að aukin fjárútlát eftirlifenda vegna kostnaðar sem til fellur þegar ástvinur deyr geta verið íþyngjandi. Þá telur meiri hlutinn að samkvæmt upplýsingum sem hann fékk við vinnslu málsins í nefndinni að gjaldið verði ekki óhóflega hátt. Innheimtan sé enda afar mikilvæg þeim kirkjugörðum sem reka líkhús en rekstrarvandi þeirra hefur verið til umfjöllunar undanfarið, m.a. í fjölmiðlum. Í öðru lagi gerir frumvarpið það mögulegt að taka frá grafarstæði til lengri tíma en 50 ára þegar sérstaklega stendur á. Þessi möguleiki getur haft jákvæð áhrif á fólk í mikilli sorg, svo sem í þeim aðstæðum að foreldrar hafa misst barn eða annað hjóna hafi látist ungt. Það er mikilvægt að gera fólki kleift við slíkar sérstakar aðstæður að taka frá grafarstæði lengur en til 50 ára. — Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.