kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni framsöguna. Í ljósi þess að ég er með breytingartillögu við málið verð ég að viðurkenna að ég er einkar vonsvikin að meiri hlutinn hafi ekki ákveðið að gera þessa breytingartillögu að sinni. Sú breytingartillaga varðar sem sagt það að gefa það frjálst hvernig við dreifum ösku. Ég hygg að hv. þingmaður þekki vel þær takmarkanir sem eru í dag í kringum það regluverk.
Hv. þingmaður fór yfir það og í nefndarálitinu stendur að þessi breytingartillaga liggi fyrir en meiri hlutinn telur tilhögun ekki samræmast efni eða markmiði frumvarpsins. Gott og vel. Nei, auðvitað ekki efni. Það er ekkert um þetta í því frumvarpi sem kom frá ráðherranum en þetta varðar samt sem áður sama lagabálkinn. Markmiðið veit ég ekki alveg en ef markmiðið er til að mynda með 2. gr. að koma til móts við fólk í erfiðri stöðu varðandi það að taka frá grafreit í lengri tíma, eins og hv. þingmaður lýsti hér áðan, þá held ég að breytingartillagan nái líka algerlega utan um það markmið.
En spurning mín til hv. þingmanns er kannski: Með hvaða hætti var breytingartillagan rædd í nefndinni? Eru þingmenn sem skrifa undir þetta nefndarálit almennt sammála því að það eigi að rýmka þessar reglur varðandi dreifingu ösku eða ekki? Mér finnst orðalagið full loðið í nefndarálitinu þar sem því er beint til ráðuneytisins að kanna hvort tilefni væri til að rýmka heimildir þannig að ég spyr: Eru nefndarmenn á því að það sé eðlilegt að rýmka þær heimildir sem til staðar eru í dag varðandi dreifingu ösku eða er uppi ágreiningur um það hvort þörf sé á því eður ei?