Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mér finnst við hæfi nú þegar fer að draga að lokum þessa þings að velta aðeins upp störfum þingsins, hvernig okkur gengur hér í starfi og samstarfi á Alþingi. Mér fannst það mjög sérstakt þegar ég kom hér inn á Alþingi í fyrsta skipti að sjá vinnubrögðin og upplifa það að hér var sterkur meiri hluti í stjórn og svo einhver gargandi minni hluti sem kom engu í gegn. Nú finnst mér voðalega skrýtið að hér skuli vera sterkur meiri hluti og hann komi bara engu í gegn. Þetta hefur svolítið snúist við. Ég myndi alveg skilja það að almenningur sem horfir á okkur væri hissa yfir því hvernig við vinnum hérna á þinginu. Mér fannst það skrýtið að minni hlutinn á síðasta kjörtímabili næði ekki nokkrum sköpuðum hlut í gegn og var að velta fyrir mér hvort það ætti að setja einhvern kvóta á þá umræðu sem á sér stað á þinginu. Ég get skilið það að minni hlutinn verður með einhverjum hætti að fá einhver hólf til að vinna með sín mál en það er bara ekki reyndin. Við erum hér með sterka ríkisstjórn sem hendir inn málum og svo eiga þau að afgreiðast í gegnum þingið. En það gengur ekki að hópur þingmanna, sem er kannski með 45% landsmanna á bak við sig, komi ekki nokkrum sköpuðum hlut í gegn. Ég held, virðulegur forseti, að þetta sé bara mál sem við þurfum að taka til gagngerrar endurskoðunar, að hér séum við endalaust að karpa um hluti sem við getum svo sannarlega verið sammála um. En hlutir minni hlutans þurfa líka að fá efnislega umræðu. Ég myndi hvetja til þess að í framhaldinu færum við í einhverja vinnu þar sem við myndum setjast yfir þetta og finna út (Forseti hringir.) hvernig við ætlum að vinna til framtíðar. Við eigum að vera sæmilega vel gefið fólk á góðum launum þannig að ég held að þetta sé mál sem við þurfum að vinna.