156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

Störf þingsins.

[10:34]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Í dag vil ég lýsa yfir ánægju og þakklæti til hæstv. heilbrigðisráðherra með að búið sé að tryggja aðgerðir fyrir konur með endómetríósu út árið og að unnið sé að framtíðarfyrirkomulagi sem byggir á samfelldri, sanngjarnri og öruggri heilbrigðisþjónustu. Það skiptir sköpum. Endómetríósa hefur verið alvarlegt og vanmetið heilsufarsvandamál sem hefur snert lífsgæði fjölmargra kvenna. Áratugum saman hefur þessi sjúkdómur verið ósýnilegur í kerfinu og konur jafnvel hvattar til að bíta á jaxlinn eða þeim sagt að þetta séu eðlilegir verkir. En nú er vilji til að hlusta, skilja og breyta. Þetta eru ekki bara falleg slagorð heldur örugg skref sem munu stytta bið, auka öryggi og veita konum raunhæfa von. Það þýðir að unga stúlkan sem heldur að verkirnir séu bara eðlilegir fær greiningu og tækifæri til að lifa sínu lífi.

Virðulegi forseti. Hér talar þingkona sem hefur lifað með endómetríósu í yfir fjóra áratugi. Sambúðin hefur verið alls konar við sjúkdóm sem lengi hafði hvorki rödd né nafn. Um hann var ekki talað, þögnin ríkti og við áttum bara að herða okkur og þegja. Það sem mín kynslóð og eldri konur þoldu í hljóði hafa yngri konur haft hugrekki til að segja upphátt. Þið hafið gefið þessum sjúkdómi rödd og andlit, krafist breytinga og neitað að láta vanrækslu viðgangast. Fyrir það vil ég þakka ykkur af öllu hjarta. Ég veit nákvæmlega hvað þið eruð að tala um. Ég stend með ykkur, með okkur. Við eigum allar rödd. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)