156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

Störf þingsins.

[10:42]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Ég hef í nokkur skipti úr þessum ræðustól rætt um skipulagða brotastarfsemi og ég ætla líka að gera það núna. Fyrir nokkrum dögum þá samþykktum við breytingar á lögum um landamæri, lögreglulögum og tollalögum. Um er að ræða frumvarp dómsmálaráðherra sem við höfum vísað til sem „farþegaupplýsinga fyrir lögreglu og tollyfirvöld“. Hér er um að ræða gríðarlega mikilvægt tæki fyrir lögreglu og tollayfirvöld til að takast á við skipulagða brotastarfsemi og með þessu frumvarpi var lokað gati sem var fyrir hendi varðandi upplýsingar um farþega sem koma til landsins með flugi. Þessar upplýsingar eins og svo margar aðrar upplýsingar eru það sem lögreglan notar til að berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi. Það er sífellt verið að safna gögnum um skipulagða brotastarfsemi, ekki bara gögnum og farþegaupplýsingum heldur alls konar gögnum. Það er verið að safna gögnum, það er verið að vista gögn, það er verið að greina gögn og það er verið að deila gögnum. Þá þurfum við líka að deila þeim og eftir atvikum að fá upplýsingar frá erlendum samstarfsaðilum, hvort sem það eru lögregluyfirvöld eða löggæslustofnanir, svo sem Europol og Interpol. Og þá komum við að öðru frumvarpi sem var samþykkt fyrir ekki svo ýkja löngu og varðar framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum sem við vísum til sem „einföldunar málsmeðferðar“. Þarna er líka um að ræða mikilvægt frumvarp sem er notað til að skiptast á upplýsingum og gera vinnslu og miðlun upplýsinga auðveldari.

Síðan eru líka boðuð lög sem við erum með í vinnslu sem varða baráttu gegn skipulagðri brotastarfsemi, m.a. er um að ræða endurheimt ólögmæts ávinnings sem er gríðarlega mikilvægt. Einnig erum við með til afgreiðslu lög sem varða afturköllun alþjóðlegrar verndar. Allt eru þetta úrræði sem munu hjálpa til við að berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi.