Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar að ræða störf þingsins. Ég er verulega hugsi eftir síðustu daga og í raun eftir síðustu vikur og jafnvel mánuði. Ég er hissa á því hvernig kjörnir fulltrúar þessa lands leyfa sér að nota þennan ræðustól á hv. Alþingi. Hér hefur ekki aðeins verið talað miklu meira í hverju málinu á eftir öðru heldur en tíðkast hefur undanfarin ár í þeim tilgangi að koma í veg fyrir framgang mála ríkisstjórnarinnar heldur hafa sumir hv. þingmenn sýnt á sér þannig hliðar að ég hreinlega vona að enginn sé að horfa. Hv. þingmenn hafa komið upp og bókstaflega öskrað á samstarfsfólk sitt líkt og börn með tilfinningavanda sem þau hafa ekki þroska til að ráða við. Forseta Alþingis hefur verið sýnd vanvirðing, m.a. með framíköllum og óviðeigandi orðum sem voru ætluð þingmanni sem sat í stól forseta og var ekki í aðstöðu til að svara fyrir sig. Hér hafa þingmenn komið upp og hneykslast á því að ekki sé verið að virða kirkjunnar siði um hvíldardag á sama tíma og orðræðan er með þeim hætti að prestar landsins hljóta að taka um höfuðið og fara með bæn fyrir hv. Alþingi. Hér hafa hv. þingmenn farið mikinn um að meiri hluti þingsins sé ekki að vanda til verka, neiti gestakomum og hér vanti greiningar, þvert á staðreyndir mála. Það vill þannig til að þetta virðist þó bara eiga við um mál sem hv. þingmenn minni hlutans eru pólitískt ósammála. Er það tilviljun, frú forseti? Það sem reynslumeiri þingmenn sem ítrekað vísa í reynsluleysi okkar hinna virðast gleyma er að hvert einasta orð sem sagt er í þessum ræðustól er bæði tekið upp og ritað niður til allrar framtíðar. Það er því ekki mikið mál að kafa ofan í þann gagnagrunn til að vita hvernig málum hefur verið háttað hér á árum áður. Þar kemur nefnilega ýmislegt í ljós sem gaman er að rifja upp nú við þetta ástand sem hér ríkir.