Störf þingsins.
Forseti. Mig langar að ræða um iðnnám í tilefni af því að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ætlar að hefja uppbyggingu á stækkun verkmenntaskóla víða um land og er tími til kominn. Við höfum sem þjóð vanrækt iðnnám um áratugaskeið. Ungt fólk hefur ekki haft aðgang að þessu námi sem skyldi. Það er til vansa og það hefur bitnað á þjóðinni og það hefur bitnað á atvinnulífi þessa lands um langan tíma. Það er gríðarlegur skortur á iðnmenntuðu fólki hér á landi og svo hefur verið um áraraðir. Ein af síðustu fréttunum sem sá sem hér stendur skrifaði í Fréttablaðið sáluga var fyrir tveimur árum eða svo um að það vantaði 1.000 rafvirkja á Íslandi. Þá erum við aðeins að tala um eina iðngrein. Vonandi verður undinn bráður bugur á þessu máli og það lagfært og hundruðum, hugsanlega þúsundum fleiri ungum mönnum alls staðar að af landinu hleypt í þetta nám, landsmönnum og atvinnulífi hér á landi til heilla.
Við þurfum einnig að huga að því í auknum mæli, frú forseti, að það er fjöldi fólks sem fellur frá námi á unga aldri, á táningsaldri, og hafði e.t.v. ekki þroska og áhuga á námi á þeim tíma en langar t.d. að komast í iðnnám á þrítugsaldri, langar að láta drauma sína rætast í þeim efnum en við hleypum þessu fólki ekki að, ekki í iðnnám, og við þurfum að laga þetta. Við þurfum að gefa fólki færi á að komast í iðnnám rétt eins og annað nám, háskólanám, á öðru aldursskeiði en bara á unga aldri, bara á táningsaldri. Þetta þarf að laga þessu fólki til heilla.