156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

Störf þingsins.

[10:51]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Hér hefur svolítið verið rætt um störf þingsins og það ætla ég líka að gera. Ég ætla að minna okkur á að þó að það hafi verið mikill hiti hér í þingsalnum að undanförnu og það er augljóst að ákveðin mál eru í miklum ágreiningi þá skulum við samt ekki gleyma því að við afgreiðum samt líka fjölda mála hér, annaðhvort þannig að fólk sé almennt sammála eða það séu skiptar skoðanir. Síðast á mánudaginn afgreiddum við að ég held fjögur eða fimm mál í atkvæðagreiðslu og á eftir bíða okkar nokkur mál til atkvæðagreiðslu. Það er eitt af þeim sem ég ætlaði að ræða núna og það er frumvarp um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu því að þar hef ég lagt fram breytingartillögu og hún gengur út á það að gefa frelsi til að dreifa ösku. Í dag eru miklir annmarkar eða miklar hömlur á því hvað fólk má gera þegar að þessum efnum kemur. Það þarf að sækja sérstaklega um það, þetta má vera yfir hafi eða öræfum, það má alls ekki dreifa henni á fleiri en einn stað, alls ekki merkja, alls ekki dreifa og grafa o.s.frv. Ég hef ekki haft neinn skilning á því af hverju löggjafinn, hið opinbera, þarf að hafa svo miklar hömlur á þessum efnum. Þess vegna hef ég margoft, ansi oft, lagt fram frumvarp um þetta. Í ljósi þess að hæstv. dómsmálaráðherra kom nú með frumvarp um breytingar á einmitt þessum lagabálki þá lagði ég fram við 1. umræðu breytingartillögu sem tekur á þessu, þar sem við gætum með einföldum hætti tekið þessar hömlur af og gert fólki þann greiða að geta orðið við hinstu ósk ættingja sinna.

Virðulegur forseti. Ég tók eftir því í upphafi þingfundar að þetta mál hafði verið tekið af dagskrá. Ég vona að það þýði að þingheimur sé tilbúinn að sammælast um þessa mikilvægu breytingu á þessu máli en það kemur þá í ljós, alla vega ekki í dag en vonandi fljótlega.