Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hér hafa stjórnarþingmenn komið upp og rætt störf þingsins, kvartað sáran undan því að hér fari fram umræða um málin. Það sást líka á síðum Morgunblaðsins í dag en tveggja mínútna maðurinn, hv. þm. Dagur B. Eggertsson, vill útdeila þingmönnum u.þ.b. tveimur mínútum til að ræða um hvert mál, að það eigi að duga hér. Það getur eflaust dugað í sumum tilfellum. En vælukórinn gleymir alveg að líta í eigin barm og skoða hver ástæðan gæti verið fyrir því að umræðan um svona mörg mál hefur lengst hér í þingsal. Getur verið að það sé af því að hin lýðræðislega vinna, þ.e. vinnan við hvert mál, lýðræðislega umræðan, samráðið og yfirlegan, grundvallarvinnan í nefndum þingsins, hafi verið aftengd? Hér er komið með hvert málið á fætur öðru, sem snýst um grunnatvinnuveg þjóðarinnar, lífeyrissjóðskerfið, almannatryggingar, launamarkaðinn — þetta kemur óunnið inn í nefndirnar og án samráðs, án þess að mat hafi verið lagt á það hvaða áhrif þetta hefur á þjóðfélagið. Getur verið að það hafi áhrif að gestir, hagaðilar sem þekkja málin best, fá ekki að koma fyrir nefndina og ef þeir fá að koma fyrir nefndina er það í 15 mínútur? Það er lítil umræða milli stjórnar og stjórnarminnihlutans um hvort hægt sé að gera málin betri. Málið kom frá ráðherranum, svona skal málið vera og það skal aftur inn í þingsal. Þetta gerir það að verkum að einhvers staðar verður minni hlutinn að fá að taka hina lýðræðislegu umræðu, einhvers staðar þurfa hagaðilar og aðrir að fá að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þegar nefndastarfið er aftengt þá gerist þetta og við það verður stjórnarmeirihlutinn að kannast.