Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í lok síðustu ræðu heyrðist hérna „heyr, heyr“ úr salnum og það er sá þáttur í störfum þingsins sem ég vildi fá að ræða aðeins dag, þ.e. heyr, heyr-ið. Þetta hefur valdið mér nokkru hugarangri frá því að ég kom inn á þing. Það er víst rík hefð fyrir þessu, að segja heyr, heyr, en það hefur svona verið undantekningartilvik. Nú finnst mér, alla vega eins og það horfir við mér, að það sé að verða að kerfisbundnu mynstri að það heyrist heyr, heyr, eftir hverja einustu ræðu í ákveðnum hópum finnst mér stundum. Fyrir þá sem fylgjast með Alþingisrásinni er þetta náttúrlega nokkuð óljóst vegna þess að þeir draga ályktanir um mikinn stuðning í sal ef það heyrist heyr, heyr. En þeir eru kannski ekki endilega upplýstir um það hvaða hópar það eru einkum sem stunda þetta heyr, heyr svona grimmt. Ég held að almennt hafi það verið bundið við vinstri væng en núna er það einkum bundið við stjórnarmeirihlutann og stjórnarliðana, (Gripið fram í: Vinstri vænginn.) — vinstri vænginn, sem er auðvitað vinstri vængurinn. Þannig að við þingmenn vitum hvernig landið liggur og ég taldi bara rétt að upplýsa þjóðina um að þannig liggur landið. (Gripið fram í: Píratar byrjuðu á þessu.) — Píratar byrjuðu á þessu, heyrist hér úr sal. Og maður spyr sig: Er þetta heyr, heyr hjá stjórninni vegna þess að þau eru svo ánægð með sig? Mér finnst það ekki alveg vera. Ef maður fer í sálfræðilega þáttinn á þessu þá snýst þetta eiginlega frekar um að gera þetta þegar þau eru hvað minnst í sér, þannig að þetta er leið þeirra til að glíma við óöryggi. Auðvitað hefur hver og einn sínar leiðir til þess, en ég taldi alla vega rétt að upplýsa um þetta þannig að fólk viti að þetta er ekki alveg fölskvalaus aðdáun á ræðumanni, þetta heyr, heyr.
Við í minni hlutanum segjum eiginlega aldrei heyr, heyr. Mér var bara sagt það af eldri þingmönnum hérna að þetta væri ósiður og ég stunda þetta ekki. En ég vildi upplýsa virðulegan forseta um það hvaða vanda þetta býr til hérna í þinginu að sumir hópar ákveði að ganga fullnærri, að mínu mati, almennum hefðum í sal þingsins sem er að ræðumaður hefur orðið. Einhver myndi segja að eitthvað verði undan að láta, (Forseti hringir.) þ.e. að stjórnin þurfi að finna sér aðrar leiðir til hópeflis og sáluhjálpar. Ég ætla ekki hóta því að við tökum þetta upp, það skyldi þó aldrei verða. En ég ætla í ljósi efnisins að óska eftir því, (Forseti hringir.) bara til þess að senda skýr skilaboð, að eftir að ég hef lokið máli mínu segi enginn heyr, heyr. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)