aðgangur að gögnum í atvinnuveganefnd.
Frú forseti. Mig langaði hér að leita aðstoðar hjá virðulegum forseta. Það varðar áfram það sem við, fulltrúar minnihlutaflokkanna í atvinnuveganefnd, teljum að séu nauðsynleg gögn og upplýsingar fyrir okkur að fá aðgang að í ljósi þess að nú eru veiðigjöldin á dagskrá þessa þingfundar til 2. umræðu. Það eru m.a. atriði sem snúa að því með hvaða hætti samskipti fóru á milli ráðuneyta og Skattsins vegna þeirra útreikninga sem nú eru sem betur fer orðnir fastari grundvöllur undir tölulegar staðreyndir í málinu. Það eru sömuleiðis skjöl sem hefur gengið treglega að fá afhent sem snúa að því hvernig verðmat á norskum mörkuðum var leitt fram. Ég vil biðja virðulegan forseta (Forseti hringir.) um að aðstoða okkur nefndarmenn minni hluta í atvinnuveganefnd að leiða þessi gögn fram (Forseti hringir.) þannig að við getum notað þau í umræðunni sem fram undan er.