aðgangur að gögnum í atvinnuveganefnd.
Frú forseti. Ég tek undir beiðni hv. þm. Bergþórs Ólasonar um að forseti hlutist til um að minni hlutinn fái þær upplýsingar sem um ræðir. Það er mjög mikilvægt, til að vönduð lagasetning eigi sér stað, og að minni hlutinn hafi allar upplýsingar til þess að geta sinnt sinni vinnu, að fá þessar upplýsingar. Þær upplýsingar sem um ræðir eru samkvæmt upplýsingalögum eitthvað sem er sjálfsagt og eðlilegt að komi fram. En ég vil fá að ítreka, frú forseti, að réttur þingmanna er meiri en kveðið er á um í lágmarksreglum upplýsingalaga. Réttur þingmanna er meiri en reglur upplýsingalaga kveða á um. Ég óska því eftir því að hæstv. forseti hlutist til um að minni hlutinn hafi aðgang að þessum gögnum svo að hann geti sinnt sínu hlutverki hér.