aðgangur að gögnum í atvinnuveganefnd.
Frú forseti. Í umfangsmikilli vinnu atvinnuveganefndar við veiðigjaldafrumvarpið hefur borið á því frá fyrstu hendi og við þekkjum það, við sjáum það bara í mati á áhrifum í upprunalega frumvarpinu, að það vantar verulega upp á gögn og greiningar. Nú er búið að bæta við og það hefur komið inn í umfjöllun nefndarinnar töluvert af nýjum gögnum og greiningum en þær eru með þeim hætti að það vantar meira og við í minni hlutanum höfum ekki haft nægilega yfirsýn yfir þá vinnu sem hefur farið fram á milli meiri hluta og ráðuneytisins í þessu máli. Þau gögn hafa ekki skilað sér nægilega til minni hlutans eða inn í umræðu í nefndinni. Það er ámælisvert að við skulum vera á þessum stað í svona stóru máli, að fara að ræða það í 2. umræðu hér í þingsal, án þess að gögn og greiningar og þær upplýsingar hafi almennilega komið fyrir. Málið hefur tekið miklum breytingum. Við erum raunverulega í þriðju útreikningunum vegna þess að gögnin hafa verið léleg. Að lokum, frú forseti, (Forseti hringir.) er gríðarlega mikilvægt að eftirlitshlutverk þingmanna sé virt í jafn stóru máli og hér um ræðir, þetta er væntanlega stærsta mál þessa kjörtímabils.