156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

aðgangur að gögnum í atvinnuveganefnd.

[11:19]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég kem hér upp og tek undir óskir eða beiðnir félaga minna hvað þetta varðar og til að undirstrika mikilvægi þess að við séum með öll þau nýjustu gögn sem eru í kringum þetta ágæta mál sem snýr að veiðigjaldi. Við förum að hefja umræðu sem verður væntanlega töluvert málefnaleg og jafnvel löng, hef ég grun um, en hún verður jafnvel lengri í ljósi þess að gögn liggja ekki almennilega fyrir, ekki þannig að menn geti glöggvað sig á þeim. Það er tvíverknaður ef við erum að fara af stað með einhverjar ræður sem síðan standast ekki gögnin sem við byggjum ræður okkar á. Það er eitthvað sem ég held að komi til með að blasa við þegar líður á umræðuna. En vonandi leysist það nú allt saman þannig að umræðan verði öflug og málefnaleg.