veiðigjald.
Frú forseti. Ég kem hér sem framsögumaður nefndarálits 2. minni hluta atvinnuveganefndar sem er nefndarálit með tillögu til rökstuddrar dagskrár. Ég fer í það hér á eftir hvað í því felst.
Annar minni hluti atvinnuveganefndar telur málið vanbúið, sem endurspeglast meðal annars í því að ítrekað hefur þurft að gera breytingar á framsetningu tölulegra forsendna, endurskilgreina ýmsar meginreglur frumvarpsins, m.a. þær er lúta að afsláttum af veiðigjöldum, svokölluðu frítekjumarki þó að það sé auðvitað rangnefni eins og við þekkjum. Atvinnuvegaráðherra hefur ítrekað verið gerð afturreka með tölulegar forsendur, nú síðast í liðinni viku þegar upplýsingar bárust frá Skattinum sem höfðu verið fengnar fram að beiðni stjórnarandstöðuþingmanna í nefndinni, upplýsingar sem kollvörpuðu upphaflegum forsendum málsins.
Annar minni hluti tekur undir þau sjónarmið sem koma fram í nefndaráliti 1. minni hluta nefndarinnar en vill bæta eftirgreindu við:
Þingleg meðferð þessa frumvarps hefur verið mörkuð linnulausum hrakföllum frá því að einu stysta og snubbóttasta samráðsferli sem sögur fara af lauk í samráðsgátt stjórnvalda, sem undanfara framlagningar málsins á Alþingi og 1. umræðu um það hinn 5. maí 2025.
Stuðningsmenn frumvarpsins hafa varið nokkru púðri í að útskýra að 1 . umræða hafi tekið fimm þingfundadaga, þegar raunin er sú að umræða átti sér stað á fjórum þingfundum og aðeins þrír þeirra voru á starfsáætlun þingsins. Í því samhengi má nefna að atvinnuvegaráðherra klappaði málinu í heila 27 daga frá því að samráði í samráðsgátt lauk þar til málinu var útbýtt á Alþingi. Sá tími virðist ekki hafa verið vel nýttur til að grunda málið betur.
Það hvernig málið birtist í upphafi, sem viðbrögð til að leiða í jörðu pólitískan vanda sem ríkisstjórnin stóð frammi fyrir, hefur markað gæði þess og undirbúning allar götur síðan. Mjög stuttur umsagnarfrestur í samráðsgátt stjórnvalda, rétt rúm vika, þegar starfsreglur ríkisstjórnarinnar segja lágmarkssamráðstíma í samráðsgátt vera tvær vikur. Mjög takmarkað samráð við hagaðila sem kemur fram í greinargerð málsins og sömuleiðis í umsögnum og komum umsagnaraðila fyrir nefndina draga upp mynd sýndarsamráðs, enda hefur ekki verið neitt legið á því, eins og hæstv. atvinnuvegaráðherra orðaði það svo ágætlega í viðtali, að það væri fráleitt að ganga til málamiðlana um málið.
Í þessu samhengi er ekki hægt að sleppa því að nefna þann fjölda gesta sem ekki fengu að koma fyrir nefndina, þrátt fyrir að hafa annaðhvort óskað eftir því sérstaklega eða boðið upp á það sjálfir, eða að nefndarmenn höfðu sérstaklega óskað eftir að viðkomandi aðili kæmi fyrir nefndina. Má þar nefna Skattinn, Byggðastofnun og fleiri. Þráðurinn var gegnumgangandi sá sami; aðilar töldu samráð við hagaðila vera óforsvaranlegt. Það sama á við um allar greiningar og áhrifamat. Áhrifamatskaflinn nær fram því sérstaka afreki að líta svo á að sveitarfélög verði ekki fyrir áhrifum af málinu með þeim rökum að þau séu ekki beinn greiðandi. Það er auðvitað ekki boðlegt í máli eins og þessu.
Frumvarpið er vanbúið, svo vægt sé til orða tekið. Sú gagnrýni sem fram hefur komið á undirbúning frumvarpsins hefur m.a. snúist um skort á tölulegum upplýsingum og að misskilnings hafi gætt hjá þeim sem frumvarpið smíðuðu á virkni veiðigjalda og afleiddum áhrifum af tilteknum breytingum. Á köflum sé um að ræða algert skilningsleysi á mismunandi mörkuðum og mismunandi gæðum og verði vöru á milli markaða. Öll er þessi gagnrýni á rökum reist.
Þær breytingar sem meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til í nefndaráliti sínu virðast fyrst og fremst ætlaðar til að mæta vandamálum sem komu upp þegar ljóst varð að ráðherra hafði reiknað rangt, hafði misskilið áhrif breytinga, ofmetið meinta leiðréttingu á útreikningi veiðigjalda og áfram mætti telja. Nú segja menn raunar: Það var hlustað, þegar staðreyndin er sú að þorskurinn, sem er nú sú tegund sem við kannski eyðum mestri orku í að ræða, er í dag í rúmum 28 kr. á kíló í veiðigjaldi. Frumvarpið gerði ráð fyrir því að þorskurinn yrði í 45 kr. á kíló. En eins og þetta er leiðist út í dag þá stefnir þetta í tæpar 58 kr. Á hvern var hlustað? Því hefur ekki verið svarað enn sem komið er í umræðunni hér í dag.
Í þessu samhengi verðum við auðvitað að halda til haga þeim fundi sem var haldinn í dag og þakka ég hv. framsögumanni málsins að koma honum á þar sem vonandi er lagður grunnurinn að því að þessar tölulegu upplýsingar verði loksins leiddar í jörðu, enda getum við bara ímyndað okkur stöðuna sem við værum í hér í þingsal, komin til 2. umræðu, ef það hefði ekki fengist fram að fá Skattinn til að reikna raunveruleg áhrif málsins eins og það liggur fyrir. Þá værum við í raun með bundið fyrir bæði augu. Það er auðvitað ekki boðlegt að í jafn alvarlegu máli og íþyngjandi skattamáli, og hér um ræðir að sú sé staðan sem þingmenn eru settir í.
Ég get ekki annað, virðulegur forseti, en farið nokkrum orðum um áhrifin á landsbyggðina. 81% þeirrar starfsemi sem tengist sjávarútvegi fer fram utan höfuðborgarsvæðisins, þ.e. á landsbyggðinni. Það er sérstakt að ríkisstjórnin skuli við upphaf kjörtímabils leggja með svo afgerandi hætti til einnar meginstoðar íslensks efnahagslífs og um leið meginstoðar atvinnulífs á landsbyggðinni. Þær fiskvinnslur sem munu búa við skerta samkeppnisstöðu og verri rekstrarskilyrði að frumvarpinu samþykktu munu ekki borga reikninga sína til framtíðar með „von“ meiri hluta atvinnuveganefndar um að „þær vinnslur þar sem rekstrarlegur grundvöllur hefur verið lakari muni rétta úr kútnum gefist svigrúm til þess“ eins og segir í nefndaráliti meiri hlutans. Þetta eru auðvitað ekki boðleg nálgun gagnvart þeim fyrirtækjum sem þessa starfsemi stunda og öll er þessi framsetning með miklum ólíkindum. Meðal annars, en ekki eingöngu, vegna áhrifa á vinnslur landið um kring er frumvarpið ótækt til afgreiðslu eins og það er og er raunar árás á hagsmuni landsbyggðarinnar.
Virðulegur forseti. Varðandi sveitarfélögin eru þau sveitarfélög sem hafa sent inn umsagnir vegna málsins í öllum meginatriðum sammála. Áhyggjum af áhrifum á sveitarfélögin er lýst með sannfærandi hætti. Bæði í umsögn samtaka sjávarútvegssveitarfélaga og einstakra sveitarfélaga. Það er í raun sérstök ósvífni að halda því fram að frumvarpið hafi ekki áhrif á sveitarfélög, með þeim rökum að sveitarfélögin séu ekki beinn greiðandi veiðigjaldsins eins og ég kom inn á áðan. Enn einu sinni lítur ríkisstjórnin fram hjá afleiddum áhrifum þeirra mála sem lögð eru fram hér í þinginu.
Virðulegur forseti. Raunveruleikinn er auðvitað sá að mörg sveitarfélög búa við að hátt hlutfall útsvarstekna og annarra tekna sem eru tilkomnar vegna veiða og vinnslu. Miklar breytingar á rekstrarskilyrðum útgerðarfyrirtækja og á samkeppnisstöðu sjávarútvegs munu hafa áhrif þar á, enda augljóst að frumvarpið eins og það liggur fyrir mun auka á þrýsting til samþjöppunar, draga úr fjárfestingum í greininni og minnka svigrúm fyrirtækja til að sinna samfélagstengdum verkefnum.
Það er heldur ekki hægt, virðulegur forseti, annað en að nefna hér áhyggjur þeirra fyrirtækja sem starfa að nýsköpun í tengslum við sjávarútvegstengda þjónustu. Áhyggjur þeirra fyrirtækja sem starfa að nýsköpun í tengslum við sjávarútveg eru augljósar og nú þegar hefur raunar verið bent á samninga og verkefni sem hefur verið frestað á meðan sú óvissa varir sem frumvarpið umvefur þá sem starfa í sjávarútvegi. Forsvarsmenn fjölda tæknifyrirtækja sem sérhæfa sig í nýsköpun og þjónustu fyrir sjávarútveginn lýsa yfir miklum áhyggjum vegna frumvarpsins sem þeir telja geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir rekstrargrundvöll og framtíð fyrirtækja þeirra. Það er í raun ámælisvert að enginn reki skuli hafa verið gerður að því að meta afleidd áhrif af þeirri miklu skattahækkun sem er fyrirhuguð samkvæmt frumvarpinu. Ég minni aftur á það sem ég nefndi hér áðan, að eftir að virðuleg ríkisstjórn og hæstv. ráðherra og meiri hluta atvinnuveganefndar hlustuðu hefur áformuð krónutöluhækkun í á þorskinn farið úr 45 kr. í 58 kr., sem er engin smá hlutfallsbreyting, þriðjungshækkun, að mér sýnist ef ég slumpa á það.
Það eru atriði sem auðvitað koma til skoðunar í þessu samhengi sömuleiðis er varða nýtingu auðlinda og heildarskattspor. Auðlindanýting og atvinnustarfsemi henni tengd verður alltaf umdeild, bæði hvað varðar umgengni um hverja auðlind fyrir sig og sömuleiðis vegna mögulegrar arðsskiptingar. Í þeim efnum á mikil vinna eftir að eiga sér stað, enda er sjávarútvegurinn eini greiðandi auðlindagjalda sem einhverju marki ná, eins og staðan er núna, þrátt fyrir að ýmsar auðlindir gætu fallið undir sambærileg sjónarmið.
Það sem mestu skiptir að mati 2. minni hluta er að heildarskattspor sjávarútvegsins vaxi og þá helst með aukinni verðmætasköpun, aukinni sókn á grundvelli öflugra rannsókna og fleiri þátta. 2. meiri hluti telur einsýnt að sú mikla hækkun sem stjórnvöld áforma með frumvarpinu, þótt eitthvað hafi dregið úr eftir að í ljós kom að ráðherra hafði reiknað rangt, verði þess valdandi að heildarskattspor sjávarútvegsins minnkar. Slíku feigðarflani verður varla lýst öðru vísi en svo að ráðherra hafi einlægan vilja til að pissa í skóinn sinn.
Virðulegur forseti. 2. minni hluti atvinnuveganefndar telur nauðsynlegt að undirbúa betur og greina nánar áhrif fyrirhugaðra breytinga á fyrirkomulagi veiðigjalda. Að mati 2. minni hluta er ljóst að núverandi frumvarp þarfnast mun ítarlegri greiningar á mögulegum áhrifum þess á atvinnulíf, samkeppnishæfni sjávarútvegs og þjóðarbúið í heild sinni. Einkum þarf að tryggja að þær breytingar, sem frumvarpið felur í sér, séu í fullu samræmi við stjórnarskrána, sérstaklega jafnræðisreglu 65. gr. og meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar sem felst í 72. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttar.
Annar minni hluti telur enn fremur fullkomlega ótækt að boðaðar breytingar á nýju fyrirkomulagi veiðigjalda taki gildi á þeim tíma sem lagt er til í frumvarpinu. Slíkur hraði á málsmeðferð sé í engu samræmi við alþjóðlegar kröfur um fyrirsjáanleika og gagnsæi skattkerfisbreytinga og þar með tekjuöflunar ríkja. Þá gangi slík málsmeðferð gegn ákvæðum laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, einkum 6. og 7. gr.
Að framangreindu virtu leggur 2. minni hluti til að frumvarpinu verði vísað frá með svofelldri rökstuddri dagskrá sem segir hér, með leyfi forseta:
„Með vísan til þess sem að framan er ritað samþykkir Alþingi að vísa málinu frá og taka fyrir næsta mál á dagskrá.“
Undir þetta nefndarálit tekur með mér hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni.
Bara nokkur orð varðandi þessa rökstuddu dagskrá. Þessi dagskrártillaga kemur til afgreiðslu í byrjun atkvæðagreiðslu eftir 2. umræðu málsins þannig að við verðum þá í færum til þess að spara okkur þá miklu vinnu sem felst í því að rekja okkur í gegnum málið með öllum þeim breytingum sem á því kunna að verða í gegnum þá umræðu sem hér er, breytingartillögur sem fram eru komnar nú þegar, í ljósi þess hversu vanbúið og illa reifað og illa ígrundað það er. Þá fáum við fáum hér í þessum þingsal, virðulegir hv. þingmenn, tækifæri til þess að slökkva á þessari æfingu strax við upphaf atkvæðagreiðslu að aflokinni 2. umræðu. Ég hvet hv. þingmenn til að hafa það í huga og nýta sér það tækifæri þegar þar að kemur.
Eins og ég sagði í upphafi ræðu minnar þá tekur 2. minni hluti undir þau sjónarmið sem fram koma í nefndaráliti 1. minni hluta. Bara til þess að skauta hratt yfir það sem ég vil leggja helst áherslu á í þeim efnum, þá er ekki annað hægt en að rifja upp það sem hv. þm. Jón Gunnarsson kom inn á í ræðu sinni rétt áðan er varðar gestakomur og gagnaöflun fyrir nefndinni. Í fljótu bragði man ég ekki eftir því að jafn mörgum gestum og jafn mikilvægum fyrir málið hafi verið hafnað um komu fyrir nefndina þegar fyrir liggur ósk nefndarmanna um að viðkomandi aðilar séu kallaðir fyrir. Það hafa mörg stór mál farið í gegnum þingið undanfarin tvö kjörtímabil. Ég nefni sem dæmi mál sem dagaði uppi á endanum, um miðhálendisþjóðgarð, þar sem gríðarlegur fjöldi gesta var tekinn fyrir nefndina. Allir sem eftir því óskuðu komu fyrir nefndina og allir komu fyrir nefndina sem einhver nefndarmaður óskaði eftir að kæmi og það er meginreglan. Ég geld varhuga við því að við stígum inn í enn eina venjuna hér í þinginu sem er sú að það sé gefið rúmt svigrúm til gestakoma fyrir nefndum, sérstaklega í málum eins og þessu sem eru raunverulega áhrifamikil, það er gríðarlega mikil skattahækkun í þessu tiltekna máli. Ég hvet þingmenn meirihlutaflokkanna til að ganga hægt um þær gleðinnar dyr að takmarka gestakomur í málum. Stjórnarliðar eru í fullum færum til að leggja fram mál nægilega tímanlega til að gestakomur geti verið með forsvaranlegum hætti. Við sjáum það með hvaða hætti, eins og ég lýsti hér áðan, tímalína þessa máls er, með styttri umsagnarfrest í samráðsgátt heldur en starfsreglur ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir. Miðað við fjölda gesta og umfang máls þá ætla ég að leyfa mér, þó að ég hafi ekki dagafjöldann á hreinu, að fullyrða að meðferðartími málsins í hv. atvinnuveganefnd hafi verið stuttur í öllu samhengi. Ég kem kannski betur inn á það í síðari ræðu minni við þessa umræðu.
Það eru hér atriði í nefndaráliti 1. meiri hluta sem verður sömuleiðis að taka undir, samanber forsendur frumvarpsins um kostnað ríkisins vegna sjávarútvegs. Það hefur beinlínis verið undarlegt að verða vitni að því með hvaða hætti þetta atriði hefur verið teygt og togað í meðferð og málflutningi þeirra sem fyrir málinu tala. Það er auðvitað einhver grundvallarmisskilningur að veiðigjöld standi ekki undir þeim kostnaði sem hið opinbera hefur af sjávarútvegi á Íslandi. Ég bara hvet hv. þingmenn sem telja það vera raunina að glöggva sig betur á þeim gögnum sem fyrir liggja og láta af þessum ósið að halda þessu fram.
Virðulegur forseti. Það er heldur ekki hægt annað en að taka sérstaklega undir með 1. minni hluta í þeim kafla er varðar forsendur frumvarpsins um fjárhæð veiðigjalds, verði frumvarpið að lögum. Þar er á hálfri blaðsíðu farið yfir með hvaða hætti tölurnar liggja í þessu máli. Það er með miklum ólíkindum að staðan sé sú að hefðu þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna í atvinnuveganefnd ekki fengið því framgengt að Skatturinn yrði fenginn til þess verks að reikna raunveruleg áhrif málsins, þá værum við hér að ræða þetta mál með bundið fyrir bæði augu. Það er bara staðan. Það eru ótrúlegar skekkjur sem fram koma frá því sem hafði verið fullyrt að væri allt reiknað upp á tvo aukastafi. Ég vil halda þessu til haga hérna, í því samhengi að það verði okkur einhver lærdómur af þessu gönuhlaupi, því ef þetta er það sem koma skal hvað nákvæmni í útreikningi áhrifa — þetta er nefnilega ekki áhrifamat frumvarpsins. Þetta er bara beinlínis útreikningur á þróun skattheimtu. Ef þróun og breytingar á skattheimtu hér eftir verða jafn illa grundaðar og menn hafa leyft sér hér í þessu máli á fyrri stigum þá erum við á mjög vondum stað hvað þann þátt varðar í störfum þingsins. Ég hvet sérstaklega stjórnarliða að taka þetta til sín.
Hér er sömuleiðis kafli er varðar reiknistofn veiðigjalds sem fjallar um hina meintu leiðréttingu sem nú er búið að margleiðrétta, enda kom á daginn að leiðréttingin var eitthvað allt annað en akkúrat það. Ég held að fulltrúar stjórnarinnar og hæstv. ráðherra hafi komið sér í dálítil vandræði með þeirri nálgun sem viðhöfð var með því að stilla þessu sem leiðréttingu, eins og eitthvað hafi verið gert rangt á fyrri stigum. Hvernig átti að leiðrétta? Annars vegar með jaðarverðum á íslenskum markaði og hins vegar verðum fyrir ósambærilega vöru á erlendum markaði. Hvernig geta menn hitt rétt á það ef þetta er upptakturinn, ef miðið er stillt með þessum hætti? Ég held að það sé raunverulega útilokað. Líkindin á því að hitta rétt á þetta með þessari nálgun hefði verið eins og að vinna tvær vikur í röð í lottóinu. Þetta er alveg fráleitt. Það beinlínis blasir við frá fyrsta degi að þetta eru ekki rétt verð. Þetta eru ekki markaðsverð í því samhengi sem haldið er fram í þessu frumvarpi, gátu aldrei verið það og voru það aldrei. Ég vil hvetja virðulega hv. þingmenn, stuðningsmenn þessa máls, til að hafa þetta í huga þegar kemur að því hér við lok þessarar umræðu að þeir fái tækifæri til þess að vísa málinu frá með þeim hætti sem segir í þeirri rökstuddu dagskrártillögu sem fylgir frávísunartillögu 2. minni hluta.
Virðulegur forseti. Hér er sömuleiðis kafli um áhrif á fjárfestingargetu, nýsköpun og samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs. Þeir þingmenn sem halda því fram að mál sem dregur fram jafn mikla skattahækkun og hér um ræðir hafi ekki áhrif á fjárfestingargetu annars vegar og fjárfestingarvilja hins vegar eru á einhverjum villigötum, er ég hræddur um, í mati sínu á málinu. Raunheimar bara kenna okkur þetta. Við sjáum áhrifin sem sú óvissa sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar leiddi yfir sjávarútveginn. Fjárfestingar í sjávarútvegi á þeim tíma fóru með merkjanlegum hætti niður, féllu eins og steinn í raun. Þetta eru áhrifin. Fólk og fyrirtæki haga sér á þann máta sem regluverkið hvetur þau helst til. Þegar svona skattahækkun er keyrð í gegn, illa ígrunduð, ef það verður nú niðurstaðan, sem ég vona að verði ekki, þá hefur það gríðarleg áhrif á ákvarðanir. Við sjáum það í því sem tæknifyrirtækin, sem stunda vöruþróun og nýsköpun í þessum geira, segja varðandi samninga sem hefur verið frestað að taka afstöðu til og verkefna. Þetta hefur allt saman áhrif. Við segjum hér í einu orðinu að við viljum að útgerðin bæti og yngi upp fiskiskipaflota sinn en síðan í hinu þá tökum við fjárfestingargetuna af með aðgerð eins og þessari. Við verðum að vera samkvæm sjálfum okkur í þeim skilaboðum sem við sendum atvinnulífinu og svo sem öllum, en sérstaklega skiptir þetta máli þegar við erum að eiga við rekstrarskilyrði, ég leyfi mér að segja, mikilvægrar undirstöðuatvinnugreinar Íslands, sem er ekki bara undirstaða atvinnu, fyrst og fremst á landsbyggðinni, verðmætasköpunar og þar fram eftir götunum, heldur er líka mikilvægasta útflutningsgreinin sem tryggir okkur þá stöðu sem við höfum hvað varðar styrk gjaldmiðils og annað í þá veruna. Það er bara mjög alvarlegt ef við köstum til hendinni varðandi mat á atriðum sem þessum.
Hvað nýsköpun varðar þá hafa hér verið nefnd mörg fyrirtæki sem hafa gert alveg stórkostlega hluti sem eru, ég leyfi mér að segja, til komin vegna getu fyrirtækja í sjávarútvegi til að fjárfesta, til að setja fjármuni í rannsóknir og þróun þó að óvíst sé um heimtur slíkra fjárfestinga á síðari stigum. Þetta er allt saman partur af því að hér sé rekinn sjávarútvegur sem skilar góðum arði og er sjálfbær í öllu tilliti og hefur fyrirsjáanleika. Fyrirsjáanleiki er lykilatriði í því að fyrirtæki fjárfesti í dag í óvísri starfsemi hvað afrakstur varðar. Líkurnar á því verða miklu meiri sjái þau fyrirtæki sem eru í færum til að fjárfesta fyrir sér að þetta geti skilað einhverju eftir töluvert langan tíma. Annars verður þróunin sú að fyrirtæki, bara rétt eins og heimili, taka ákvarðanir út frá skemmri tíma sýn.
Samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs er auðvitað algjört lykilatriði í öllu því sem við höndlum með hvað starfsskilyrðin varðar. Starfsskilyrði íslensks sjávarútvegs eru sem betur fer ágæt. Þau voru undirorpin mikilli óvissu kjörtímabilið 2009–2013 og við sjáum hvaða áhrif það hafði, m.a. á hröðum samþjöppunar, þróunar í fjárfestingu og annað slíkt sem skiptir jafn miklu máli og raunin er. Ég hvet þá sem hér hlusta á og eru stuðningsmenn þessa máls, jafn undarlegt og það kann að vera, að hugsa þetta með opnum hug. Áhrifin sem málið eins og það liggur fyrir núna eru miklum mun víðtækari heldur en bara á rekstrarreikning og síðan efnahagsreikning þeirra fyrirtækja sem borga veiðigjaldið. Og það er ekki bara stórútgerðin. Eins og málið lá fyrir í byrjun þá minnir mig að Landssamband smábátaeigenda hafi reiknað að þetta væri að jafnaði 81% hækkun á þeirra félagsmenn. Það er auðvitað orðin breyting eftir að breytingartillögur komu fram í þeim efnum. En þetta segir manni að þegar málið er lagt fram þá er beinlínis engu eirt. Það er enginn hér í salnum, held ég, sem hafði á tilfinningunni að smábátasjómenn sæju fram á 81% hækkun sinna gjalda. Ég leyfi mér að fullyrða að það var enginn sem taldi að það verða raunin. Svo varð það raunin af því að þetta er eitt af þeim atriðum sem ekki tókst með forsvaranlegum hætti að reikna með réttum hætti í gegnum. Það er á ábyrgð okkar þingmanna að hleypa ekki svona dellu í gegn. Þetta er grafalvarlegt mál þegar menn mögulega standa í því að leggja hugsanlega milljarða á eina atvinnugrein í skatta umfram það sem ætlunin var fyrir misskilning. Það er ekki boðlegt. Við eigum ekki að láta slíkt spyrjast út um okkur en það er myndin sem teiknaðist upp þegar Skatturinn loksins reiknaði út raunveruleg áhrif frumvarpsins. Þá fór allt í hers hendur og menn fóru að hlaupa frá upplegginu sem lagt var fram í frumvarpinu eins og það liggur fyrir.
Þetta ber allt að þeim brunni að málið er ekki nógu vel ígrundað, áhrifin eru ekki metin með forsvaranlegum hætti og þess vegna eigum við að leyfa þessu máli að deyja þennan þingveturinn og ríkisstjórnin getur þá komið til baka næsta haust með betur unnið mál.
Virðulegur forseti. Það fer nú að styttast í þeim tíma sem ég hef til ráðstöfunar í þessari ræðu. En mig langar að nefna stuttlega áhrifin á sjávarbyggðir sem komið er inn á í nefndaráliti 1. minni hluta sem ég tek undir. Áhrif á sjávarbyggðirnar eru auðvitað með þeim hætti að umsögn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga hefði átt ein og sér að vera nægjanleg til þess að stuðningsmenn þessa máls kæmust að þeirri niðurstöðu að best væri að flýta sér hægt. Það er einhver svona allt að því ofstopi í því að ætla að halda áfram með mál sem æpir á alla sem það skoða hvað vantar mikið upp á hvað varðar grundvöll talna og áhrifa. Það eru 26 sveitarfélög í Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga og hjá þeim sem áhrifin eru mest er það í námunda við 50% útsvarstekna sem koma frá veiðum og vinnslu og og tengdri þjónustu veiða og vinnslu. 50%. Hvaða áhrif halda menn raunverulega að það hafi ef mál eins og þetta setur hringekju af stað sem hefur raunveruleg áhrif í þessum efnum? Allir sem komu fyrir nefndina, leyfi ég mér að fullyrða, ég alla vega man ekki eftir neinum sem var annarrar skoðunar, voru þeirrar skoðunar að málið eins og það liggur fyrir núna muni ýta undir samþjöppun, muni setja af stað ferli sambærilegt því sem við sáum seinast fara af stað 2012 þegar veiðigjöldin voru innleidd og voru þau nú samt innleidd með miklu mildari hætti en lagt var af stað með í þeirri vinnu á sínum tíma.
Mig langar undir lokin, virðulegur forseti, að nefna stuttlega undirbúning frumvarpsins. Það blasir við að miðað við öll þau vandræði sem þeir sem á málinu hafa haldið frá fyrsta degi hafa lent í að undirbúningurinn er ekki forsvaranlegur. Það er svigrúm fyrir hæstv. ráðherra til að hvetja stjórnarþingmenn til þess að láta nú gott heita, taka málið til sín og vinna það betur í gegnum sumarið og haustið . Það þarf enginn að skammast sín fyrir það að ná ekki öllum málum í gegn á þingi sem byrjar í febrúar í stað þess að byrja í september eins og hefðbundið þing. Þannig að ég bara hvet bæði hæstv. ráðherra og hv. þingmenn stjórnarinnar til að nýta það tækifæri sem í því felst að þetta er stutt þing, mun styttra heldur en þau þrjú sem við væntanlega eigum fram undan þar til kemur að næstu kosningum í síðasta lagi, og hverfa frá þessum áformum, greiða atkvæði með rökstuddri frávísunartillögu í 2. minni hluta atvinnuveganefndar og spara okkur þá vinnu að fara í gegnum þetta allt í atkvæðagreiðslu að aflokinni 2. umræðu, vinnu í hv. atvinnuveganefnd á milli 2. og 3. umræðu og síðan alla 3. umræðu (Forseti hringir.) sem bíður að aflokinni þeirri vinnu.
Ég læt þetta duga í bili og vil biðja virðulegan forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.