veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Við vitum að framsalið hefur skapað mikið markaðsvirði í fyrirtækjum og eignir þeirra eru orðnar miklar í bókum. En samt eru vísbendingar um að markaðsvirði sé mjög vanmetið og ekki í neinu samræmi við veiðigjaldið sem hefur verið greitt undanfarin ár. Árið 2023 var framlegð hjá útgerðum landsins rúmir 93 milljarðar og ef veiðigjöldin hefðu hækkað eins og nú er verið að tala um hefði framlagið verið um 84 milljarðar. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann telji þessi fyrirtæki, sem greiða kannski í dag hátt í 80% af veiðigjöldum, ekki geta ráðið við þá hækkun sem er boðuð í þessu frumvarpi með þeim leiðréttingum sem eru gerðar á reiknistofni og þeim afslætti sem er boðaður í breytingartillögum nefndarinnar.