veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það sem skiptir mestu máli í þessum efnum, að mínu mati, er að heildarskattspor sjávarútvegsins sé sem stærst. Því náum við ekki fram með því að gíra einn hluta skattstofnsins upp í hæstu gildi eins og hér er lagt til. Það er ekki skynsamleg mælistika að horfa til EBIDA- framlegðar í jafn fjármagnsfrekri grein og útgerðin er. Það væri skynsamlegt að horfa til annarra þátta. Ég held að við ættum að fara varlega í að nýta okkur það hlutfall, þó að ríkisstjórnarflokkarnir hafi gert töluvert af því, bara vegna eðli sjávarútvegs og þeirrar miklu fjárbindingar sem þar er nauðsynleg. Ég er ekki í færum til að leggja mat á hvaða fyrirtæki eða heimili eru aflögufær um nokkurn skapaðan hlut í sjálfu sér heldur skiptir máli að rekstrarumhverfið sé gegnsætt og sanngjarnt og hvetji til góðs reksturs (Forseti hringir.) þar sem heildarafrakstur, heildarskattspor, atvinnugreinarinnar er sem stærst. Svo er ekki með þeirri nálgun sem hér er lögð til.