veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég ítreka spurningu mína til hv. þingmanns, hvort hann telji ekki að þessi stærstu sjávarútvegsfyrirtæki geti greitt meira en þau gera í dag til samfélagsins. Það er kannski grundvallarspurning þegar hv. þingmaður veit hver velta þeirra er og arðsemi eigin fjár á hverju ári. Ég vil spyrja hann út í þann afslátt eða frítekjumarkið sem er aukið mjög mikið í breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar, að afslátturinn sé 65% af fyrstu 15 millj. kr. og 45% af næstu 55 millj. kr. og líka að aflaverðmæti makríls miðist við 80% af aflaverðmæti eins og miðað var við. Skiptir þetta ekki einhverju máli í huga hv. þingmanns þegar verið er að tala um þessar breytingar, minni byggðarlög og annað, að það sé verið að mæta þeirra stöðu í þessu máli? Getur hv. þingmaður ekki tekið undir það að það sé virkilega verið að koma til móts við lítil og meðalstór fyrirtæki og þau byggðarlög sem eiga allt sitt undir í þeim efnum?