Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:11]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Fyrst að spurningunni: Geta þau greitt meira? Þar vísaði hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir til arðsemi eigin fjár. Arðsemi eigin fjár í sjávarútvegi er ekki há í samhengi við aðra geira, bara alls ekki. Það skýrist af því sem ég kom inn á í fyrra andsvari mínu að þetta er fjármagnsfrek grein. Þess vegna er EBITDA-mælikvarðinn svo vondur þegar lagt er mat á sjávarútveginn, rétt eins og menn notast ekki við EBITDA-mælikvarða þegar horft er til hvernig gengur í stóriðjunni, svo dæmi sé tekið, sem sömuleiðis bindur mikið fjármagn. Varðandi afslættina og breytingarnar á þeim: Ja, skárra væri það nú, þegar uppleggið sem birtist mönnum í fyrstu atrennu var með þeim hætti að raunverulega alla sem komu að útgerð, hvar sem var á stærðarskala útgerðarinnar, rak í rogastans. Eins og ég nefndi hér áðan þá sagði Landssamband smábátaeigenda að þetta væri meðalhækkun hjá þeirra félagsmönnum upp á 81% þannig að mér þykir nú gustuk að eitthvað hafi verið stigið til baka, sérstaklega í ljósi þeirra villna sem komu fram í útreikningum. (Forseti hringir.) En ég held að þrátt fyrir þetta séum við að ganga of hart fram gegn smærri útgerðum og sveitarfélögum víða um landið.