veiðigjald.
Frú forseti. Fyrst vil ég mótmæla því sem kom fram í ræðu hv. þingmanns, að það liggi eitthvað lítið af tölulegum upplýsingum fyrir og greiningum. Það er alveg ljóst að það hefur engin breyting á veiðigjaldi verið eins mikið greind og einmitt þessi sem við erum að ræða hér. Því vil ég spyrja, einnig út frá því að það hafa verið bornar brigður á upplýsingar frá ráðuneytinu, m.a. að gögn þeirra standist ekki skoðun og menn telji að það sé jafnvel verið að leyna gögnum og alla vega, það væri fróðlegt að fá það á hreint: Treysta hv. þingmenn Miðflokksins ekki upplýsingum frá Stjórnarráðinu? Eða er það aðeins þegar kemur að gögnum sem snúa að veiðigjöldum og einhverju þesslegu? Það er alveg ljóst að það kemur einfaldlega yfirlýsing 16. júní sl. um það (Forseti hringir.) að allir aðilar sem hafa verið tilgreindir í þessu máli, hvort sem það er Fiskistofa, ráðuneytið, fjármálaráðuneytið eða Skatturinn, eru sammála um forsendurnar.