Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:14]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir svarið. Fyrst verð ég bara að mótmæla mótmælum hv. þingmanns. Ég sagði í engu að það væri lítið af tölulegum upplýsingum. Ég sagði að þær upplýsingar sem við óskuðum sérstaklega eftir væru ekki gerðar okkur aðgengilegar og það er mikill munur þarna á. Hv. þingmaður velti því upp hvort við teldum að verið væri að leyna gögnum. Ég ætla ekki að fara í þær hártoganir, ég held að það væri bara skynsamlegast að afhenda þau gögn sem tiltæk eru. Það auðveldar bæði þingmönnum og hagaðilum að leiða fram réttar tölur. Virðulegur hv. þingmaður spurði sömuleiðis hvort Miðflokkurinn treysti ekki upplýsingum frá Stjórnarráðinu. Það hefur sennilega enginn haldið fleiri ræður í þessum sal, alla vega ekki á síðustu kjörtímabilum, en sá sem hér stendur varðandi gagnrýni á áhrifamat frumvarpa. Þau eru nú býsna oft ansi skrautleg, svo vægt sé til orða tekið, og meina ég það ekki í jákvæðum skilningi. Ég er sannfærður um að í ráðuneytum eru allir starfsmenn að reyna að gera sitt besta (Forseti hringir.) en í þessu máli sem var unnið jafn hratt og með jafn broguðum grunni … (Forseti hringir.)

Frú forseti. Ég biðst afsökunar, ég kem inn á þetta í seinna andsvari.