Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:16]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Látum nú vera að það sé verið að dylgja hér um gögnin, það séu jafnvel einhverjar upplýsingar sem liggi einhvers staðar (Gripið fram í.)í burtu og það sé verið að halda þeim frá minni hlutanum. En mig langaði að spyrja hv. þingmann: Telur hann núverandi veiðigjöld hæfileg? Myndi hann vilja lækka þau? Hver er stefna Miðflokksins? Telur Miðflokkurinn að það eigi jafnvel að leggja þessi gjöld alfarið af, það myndi mögulega hækka skattsporið, eða hver er stefna Miðflokksins? Það hefur ekki alveg komið skýrt fram í umræðunni hver í rauninni stefna flokksins er hvað þessa gjaldtöku varðar.