Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:17]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Já, það er nú bara þannig að ég tel veiðigjaldið vera einfalt, gegnsætt og leitt fram með sátt eins og það liggur núna. Ég held að við ættum að horfa til þess að vera á svipuðum nótum og verið hefur en reyna að hækka skattspor sjávarútvegsins, þar á meðal veiðileyfagjaldið, með aukinni verðmætasköpun, með auknum rannsóknum og vonandi í framhaldinu aukinni sókn og þar fram eftir götunum. Það eru margar leiðir að því að stækka skattsporið og auka tekjur af veiðigjaldi. En þetta er ekki skynsamleg leið til þess.

Aftur af því hvort Miðflokkurinn treysti ekki upplýsingum frá Stjórnarráðinu, því ég rann út á tíma áðan. Ég held að allir starfsmenn til að mynda atvinnuvegaráðuneytisins séu að gera sitt besta. En það liggur fyrir að grundvöllurinn var svo brogaður í byrjun, sem er dregið fram í gegnum vinnu Skattsins, (Forseti hringir.) að það er ekki forsvaranlegt, hvorki að setja okkur þingmenn í þá stöðu að halda áfram með málið né (Forseti hringir.) heldur þá starfsmenn sem hafa unnið að undirbúningi málsins á fyrri stigum. Þeim er enginn greiði gerður með þessu verklagi.

(Forseti (EÁs): Ég bið hv. þingmenn að virða ræðutíma sem er ein mínúta.)