veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu sem var um margt áhugaverð, sumt þarna sem ég þurfti aðeins að hugsa, sérstaklega þegar kemur að landsbyggðinni. Það var talað um að þetta væri landsbyggðarskattur, ég held að hv. þingmaður hafi talað um árás á landsbyggðina. Ég er kannski á sömu nótum og hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir, mig langar að spyrja um hvað þingmanninum finnst um frítekjumarkið. Það er búið að taka verulega mikið tillit til lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Ég vil bara spyrja þingmanninn: Hvaða rök hefur hann sem styðja þessa fullyrðingu hans? Þessi litlu og meðalstóru fyrirtæki eru mestmegnis á landsbyggðinni þannig að ég velti fyrir mér hvaða gögn hann hefur til þess að rökstyðja þessi stóru orð sín. Ég er almennt séð kona sem er frekar hógvær í orðum mínum þannig að mér bregður svolítið þegar það er verið að tala um árás, að taka sér svo stór orð í munn, (Forseti hringir.) af því að það stendur skýrt í frumvarpinu að það er virkilega verið að koma til móts við litlar og meðalstórar útgerðir.