veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla bara að leyfa mér að kalla þetta landsbyggðarskatt af því að þetta er landsbyggðarskattur í því ljósi að 81% þeirrar starfsemi sem tengist veiðum og vinnslu á sér stað á landsbyggðinni. Hérna er verið að setja af stað mekanisma sem mun draga fjármuni frá landsbyggðinni inn í hítina sem við útdeilum aftur hér við Austurvöll með mjög ótryggum heimtum fyrir þau svæði sem missa alvöruupphæðir út af sínum svæðum. Þetta kalla ég árás á landsbyggðina. Og bara svo það sé alveg á hreinu og hv. þingmaður þarf ekki að velta því fyrir sér hvort þetta sé skoðun mín eða ekki: Þetta er skoðun mín.
Hv. þingmaður kemur jafnframt inn á að tekið sé tillit til lítilla og meðalstórra fyrirtækja í þeim breytingum sem eru lagðar til í áliti meiri hluta nefndarinnar. Þær breytingar sem þar eru gerðar eru að hluta til í takti við breytingar (Forseti hringir.) sem var nauðsynlegt að gera eftir að reiknivillan var dregin fram í gegnum vinnu Skattsins. (Forseti hringir.) Mér sýnist á öllu — það er ekki enn þá búið að uppfæra það skjal sem fulltrúar stjórnarandstöðunnar í hv. nefnd hafa ítrekað óskað eftir, (Forseti hringir.) það er ekki enn búið að uppfæra skjalið um áhrif á hverja útgerð fyrir sig. Það væri nú gustuk að það verði gert sem allra fyrst.
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmann á að ræðutíminn er ein mínúta en ekki ein og hálf.)