Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:21]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er mjög áhugavert nefndarálitið sem 2. minni hluti leggur hér fram og mig langar aðeins að ræða um þetta samráðsleysi sem hann talar um í álitinu. Það kemur skýrt fram í nefndaráliti meiri hlutans að það hafi fjölmargar umsagnir um málið borist, 62 umsagnir sem er nú mjög mikið, á þeim tíma sem var gefinn til umsagnar, bæði í samráðsgáttinni en svo líka hjá þinginu, 46 gestir auk þess sem ráðuneytið kom líka fyrir nefndina. Er ekki dálítið ódýrt að kalla þetta samráðsleysi? Er það ekki ódýrt? Ég bara spyr hv. þingmann þessarar eðlilegu spurningar af því að mér finnst þetta vera samráð. Málið er lagt fram í samráðsgátt og þar koma fram athugasemdir, ráðuneytið tekur tillit til þess. Þetta er lagt fram í þinginu í 1. umræðu, fer til nefndarinnar og þar koma aftur umsagnir og það er aftur tekið tillit til umsagna. (Forseti hringir.) Er ekki ódýrt hjá hv. þingmanni að kalla þetta samráðsleysi?