Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:23]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni andsvarið. Nei, ég gæti tekið miklu fastar til orða en ég geri hér. Staðreyndin er sú að í frumvarpinu kemur beinlínis fram að það hafi verið rætt við einn hagaðila, einn, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Við getum bara farið í gegnum fréttir þar sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi lýsa því með hvaða hætti samtökunum voru gerðar aðgengilegar upplýsingar sem grundvalla þetta mál. Það eitt og sér er bjalla sem ætti að hringja nokkuð skýrt. Síðan kemur að samráðsgáttinni þar sem voru gefnir, minnir mig, sex virkir dagar til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda þegar starfsreglur ríkisstjórnarinnar segja beinlínis að samráðsferlið skuli aldrei vera styttra en tvær vikur. Þetta er ekki merki um öflugt samráð eða vilja til þess. Síðan þegar stjórnarliðar tala um að það hafi verið hlustað, þá var hlustað svo skýrt að þorskurinn fer úr 45 kr. í frumvarpinu upp í 57 kr. eftir endurreikninga Skattsins, (Forseti hringir.) þrátt fyrir að forsendur hafi verið lækkaðar til útreiknings. Þetta teiknar ekki upp neina mynd af vilja til samráðs.