Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:24]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans innlegg hér. Við erum að ræða gríðarlega mikilvægt mál, stórt mál fyrir þjóðina, fyrir samfélagið, leiðréttingu á veiðigjöldum, leiðréttingu á þeim gjöldum sem greidd eru fyrir afnot af auðlindum þjóðarinnar, sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Ég ætla að spyrja hv. þingmann út í afstöðu hans til veiðigjaldsins yfir höfuð. Sú spurning kom reyndar hérna rétt áðan í andsvörum, svona nokkurn veginn, en ég væri til í að heyra betur hver nákvæmlega afstaðan er til veiðigjalda og til greiðslna á gjöldum fyrir afnot af þessari mikilvægu sameiginlegu auðlind. En jafnframt myndi ég vilja spyrja — ja, ég held ég geymi það þar til í næsta andsvari.