veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég hélt í eitt augnablik að hann hefði séð aumur á mér og ætlaði að spara mér frekari spurningar en þá rann hv. þingmaður út á tíma í staðinn. En varðandi leiðréttinguna þá er það auðvitað komið á daginn og það þarf enginn að velkjast í vafa um það að hér er ekki um neina leiðréttingu á nokkrum sköpuðum hlut að ræða. Hér er bara um hreina landsbyggðarskattahækkun að ræða, þannig að það sé alveg á hreinu. Varðandi afstöðuna til veiðigjalds þá sagði ég það hér áðan að fyrirkomulagið eins og það er núna þykir mér hafa verið leitt fram með skynsamlegum hætti í sátt hagaðila, þar sem eru öðrum megin stjórnvöld, hins vegar þeir sem standa í þessari starfsemi. Ég held að við höfum hitt ágætlega á það eins og þetta liggur núna. En við ættum að reyna að stækka bæði skattspor sjávarútvegsins í heild og auka tekjur af veiðigjaldinu með aukinni verðmætasköpun, auknum rannsóknum og vonandi aukinni sókn í framhaldinu. (Forseti hringir.) Það er leiðin að þessu.