Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:26]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil ítreka, og kannski liggur hundurinn grafinn þarna, að hér er um leiðréttingu að ræða, leiðréttingu á veiðigjöldum og leiðréttingu á þeim reiknistofni sem liggur að baki þeim. Það blasir alveg við, við öllum sem skjölin lesa. Ég held að það væri ágætt að rýna kannski aðeins betur í það. En ég velti fyrir mér varðandi opinber gjöld, þegar þau eru lögð á, á hvaða grunni hv. þingmaður telji eðlilegt eða heppilegast að það eigi að vera. Á það að vera matskennt atriði hjá hverjum aðila fyrir sig eða telur hann rétt að ríkið skilgreini það? Síðan langaði mig að spyrja hv. þingmann út í gögnin því nú er honum tíðrætt um gögn og skort á þeim: Telur hann líklegt að okkur takist hér á Alþingi að finna nákvæmar tölur fyrir veiðigjald fyrir næstu tvö, þrjú ár, sama hversu lengi við reiknum?