Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:28]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mér liði nú strax betur ef við gætum bara reiknað gefnu forsendurnar sem standa í frumvarpinu og það sem við erum að leiða út núna, látum nú vera að við náum ekki að horfa inn í framtíðina með tveggja aukastafa vissu. Það hefur gengið mjög illa að hafa festu í því hver áhrif frumvarpsins eru á þekktu stærðirnar, sem eru veiðigjöldin sem þegar hafa verið lögð á. Það hefur gengið mjög illa, bara svo því sé haldið til haga.

Hv. þingmaður ítrekar hér að þetta sé leiðrétting. Þetta er ekki leiðrétting. Við getum mögulega samið um að þetta sé breyting. Þetta er breyting til hækkunar á skatti sem fyrst og fremst leggst á landsbyggðina. Nei, ég sé að hv. þingmaður nikkar ekki, það náðust ekki samningar um þetta. Þetta er breyting, ekki leiðrétting.

Opinber gjöld, hvað ætti að grundvalla þau? Ég get alla vega sagt með fullri vissu að mér þætti ekki skynsamlegt að leggja á fasteignagjöld á Raufarhöfn á grundvelli íbúðarverðs í Ósló. Við verðum að grundvalla skattheimtu á því sem höndlað er með í hvert skipti. (Forseti hringir.) Það er það sem hefur verið gert um langa hríð í gegnum núverandi fyrirkomulag. (Forseti hringir.) Það er fráleitt að ætla að grundvalla skattheimtu á Íslandi á grundvelli (Forseti hringir.) verðs á alls ótengdri vöru í Noregi. Það er bara þannig. — Frú forseti. Ég biðst afsökunar.