Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:53]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar til að byrja á því að spyrja hv. þingmann út í það sem blasir við okkur hér sem mikill landsbyggðarskattur í því ljósi að 81% þeirrar starfsemi sem tengist útgerð og vinnslu á sér stað úti á landi. Hv. þingmaður sagði undir lok ræðu sinnar — frú forseti, ég ætlast ekki til þess að ég fái 15 mínútur til að spyrja þeirrar ágætu spurningar sem ég var að ramma inn hérna.

(Forseti (BHar): Ég efast ekki um að hv. þingmaður gæti það, en þetta á að vera ein mínúta.)

Frú forseti. Hv. þingmaður kom inn á það hér að það væri 7 milljarða skattahækkun sem kæmi fram vegna þessa máls eins og það liggur núna. Miðað við 81% hlutfallið þá koma 5,7 milljarðar af þeirri tölu utan af landi í ríkissjóð. Hvernig slær það hv. þingmann að 5,7 milljarðar séu teknir út úr rekstri og samfélögum landið um kring?