veiðigjald.
Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir þessa góðu spurningu. Þetta hefur komið hér margoft fram í dag, hvort þetta sé landsbyggðarskattur. En stóri landsbyggðarskatturinn er auðvitað sú innviðaskuld sem blasir við okkur íbúum landsbyggðarinnar. Hún birtist í tjörublæðingunum sem maður lendir í og bílarnir verða fyrir skemmdum. Hún birtist í lélegri heilbrigðisþjónustu og þegar íbúar landsbyggðarinnar þurfa að borga mikið í ferðakostnað til að sækja sjálfsagða þjónustu á landsbyggðinni. Þannig að ég myndi ekki segja þetta væri landsbyggðarskattur. En megnið af þessari hækkun veiðigjalda liggur hjá stærstu og öflugustu fyrirtækjum landsins og sum þeirra eru svo sannarlega með heimilisfesti á landsbyggðinni. En þau eru líka með heimilisfesti hér á höfuðborgarsvæðinu þannig að ég kýs ekki að kalla þetta landsbyggðarskatt. En ég kýs að kalla stóru innviðaskuldina sem blasir við okkur öllum landsbyggðarskatt