Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:55]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég taldi spurningu mína vera mjög einfalda og skýra þannig að ég ætla að endurtaka hana: Telur hv. þingmaður að það að 5,7 milljarðar, tæpir 6 milljarðar á ári miðað við þessa breytingu, nái hún fram að ganga, fari út úr fyrirtækjum og samfélögum á landsbyggðinni styrki þau fyrirtæki og samfélög eða veiki þau?