Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 64. fundur,  18. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:56]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við hv. þm. Bergþór Ólason erum sammála um það að það þarf að skapa fyrirtækjum á landsbyggðinni samkeppnishæf skilyrði. Ég hef unnið töluvert við það í gegnum tíðina að skoða þessi samkeppnisskilyrði fyrirtækja. Eitt það mikilvægasta sem stjórnvöld geta gert til þess að efla samkeppnishæfni fyrirtækja á landsbyggðinni er að bjóða upp á almennilegar samgöngur, vera með vegi sem eru í lagi, með hafnir sem eru í lagi, vera með góða fráveitu. Það eru þessir þættir sem skipta fyrirtækin gríðarlega miklu máli. Ég held líka að þessi stóru fyrirtæki sem munu nú bera stærsta hlutann af hækkun veiðigjalda, þau eiga líka bara að vera ánægð að geta lagt sitt af mörkum, það eru líka þau sem eru að nýta þessa innviði, svo sannarlega. Ég held að við hv. þingmaður ættum að sameinast um það að skoða hvað við getum gert betur í innviðum landsins til að skapa þessum fyrirtækjum samkeppnishæf skilyrði. Það erum við svo sannarlega sammála um.