156. löggjafarþing — 65. fundur, 19. júní 2025.
varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur og Degi B. Eggertssyni um að þau verði fjarverandi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Sverrir Bergmann Magnússon, og 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Anna María Jónsdóttir. Sverrir Bergmann Magnússon og Anna María Jónsdóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.