kvenréttindadagurinn.
Þennan dag fyrir 110 árum undirritaði Kristján X., konungur Íslands og Danmerkur, lög um breytingu á stjórnarskrá Íslands, sem m.a. breyttu skilyrðum fyrir kosningarrétti. Íslenskar konur höfðu fram til þessa ekki haft almennan kosningarrétt eða kjörgengi en með stjórnarskrárbreytingunni 19. júní 1915 öðluðust konur eldri en fertugar rétt til að greiða atkvæði í almennum kosningum og bjóða sig fram til þátttöku i stjórnmálum. Þetta átti einnig við um karla í vinnuhjúastétt.
Réttarbótin árið 1915 kom ekki af sjálfu sér. Barist hafði verið fyrir víðtækari kosningarrétti á mörgum vígstöðvum og þar á meðal á vettvangi kvennahreyfinga. Þegar árið 1916 tóku konur að halda 19. júní hátíðlegan og fram á fjórða áratug síðustu aldar var þessi dagur árlegur hátíðisdagur kvenna þar sem þær minntust áfanga í baráttu kvenna fyrir borgararéttindum og jafnræði og glöddust saman. Kvennadagurinn féll í gleymsku um nokkurt skeið, en var endurvakinn með nýrri kvenréttindahreyfingu á 8. áratug síðustu aldar og hefur fyrir löngu unnið sér sinn fasta sess sem sérstakur íslenskur kvenréttindadagur enda er honum fagnað um allt land í dag. Megi hann lengi lifa!
(Gripið fram í: Heyr, heyr.)