veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og skilaboðin eru þá skýr. Mig langaði hins vegar að spyrja hv. þingmann út í áhrifin af þessari skattahækkun. Hér hefur verið gert mjög lítið úr þessum áhrifum milli þess sem þó er fullyrt að ekki sé hægt að meta áhrifin, að það sé eiginlega ógjörningur, þannig að það er nú aðeins ruglingslegt. En hv. þingmaður úr stjórnarliðinu kom upp hér áðan og velti fyrir sér hvort við værum að bera það á borð eða hafa áhyggjur af því að einhverjar ákveðnar brothættar byggðir legðust í eyði. En hverjar eru raunverulegar áhyggjur sem þessar byggðir, fulltrúar þeirra og fulltrúar hagsmunasamtaka, hafa viðrað við hv. þingmann og eru þær réttmætar? Telur hv. þingmaður það?