Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 65. fundur,  19. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:29]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er eiginlega sama hvert litið er í þeim umsögnum sem liggja fyrir, þær eru efnislega allar á svipuðu róli. Það er sama hvort við lesum umsagnir sveitarfélaga, sérstaklega þeirra 26 sjávarútvegssveitarfélaga sem lögðu fram mjög vel ígrundaða og vel rökstudda umsögn, umsagnir þeirra fyrirtækja sem þjónusta útgerðina eða umsagnir útgerðarfélaganna sjálfra. Þetta eru mjög réttmætar og vel grundaðar athugasemdir og áhyggjur og mér sýnist á öllu að áhrifin sem þetta frumvarp leiðir fram eins og það liggur fyrir — að ekki sé talað um eins og það var lagt fyrir í upphafi, sem var náttúrlega með þvílíkum talnamistökum að ótrúlegt er og hefði átt að vera nægjanlegt til þess að menn drægju frumvarpið til baka. En áhrifin eru svo alvarleg að ég held að það sé ekki annar möguleiki í stöðunni en að stjórnarliðar hafi ekki enn lagt sig niður við að átta sig á þeim. Það gæti ekki nokkur landsbyggðarþingmaður talað fyrir málinu eins og það var lagt fram eða varið það með þeim rökum sem enn sem komið er hafa komið fram.