Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 65. fundur,  19. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:34]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég þakka líka fyrir tilvitnunina sem hann kom með í ræðu sinni hér áðan. Hann vitnaði í orð Guðna Einarssonar Klofningi á Suðureyri við Súgandafjörð — ég veit ekki hvort hann flokkast sem miðlungsstór aðili eða minni aðili — sem ramma þetta svo vel inn. Það gengur vel og er ekki nóg að sjá fram á þann ábata sem skattar vegna velgengni, skattar íbúa og fyrirtækja, eru að skila og allar spár gefa til kynna að verði enn meiri til framtíðar? Nei, það á að koma í veg fyrir það og taka meira af fyrirtækjunum í einhverri einskiptisaðgerð sem er skammgóður vermir.

Mig langar að spyrja hv. þingmann, þar sem hann er nú eldri en tvævetur á þingi og í pólitíkinni — er það ekki? — hvort hann muni dæmi um það að háir skattar hafi skilað meiri verðmætum í þjóðarbúið, hvort þeir hafi einhvern tíma skilað meiri tekjum, eins og hér er verið að reyna að telja okkur trú um.