veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Auðvitað snýst þetta alltaf á endanum um það að stækka skattspor hverrar atvinnugreinar. Það er hið raunverulega markmið sem við hljótum að vera að vinna að. Þannig næst fram allra hagur, ef svo má segja. Það að ganga of langt í skattheimtu er vísasti vegurinn til að draga úr heildartekjum ríkissjóðs af hverri atvinnugrein fyrir sig. Við þekkjum ótal dæmi þessa. Nýjasta dæmið svona í stærri hlutföllum er auðvitað þegar Norðmenn ætluðu að fara að herða hressilega að auðmönnum sínum og ná viðbótartekjum þaðan. Og hvað gerðist? Jú, þeir fluttu bara. Það gerðist ekkert annað en að þeir bara fluttu og heildartekjur norska ríkissjóðsins af þeirri skattheimtu lækkuðu verulega.
Þetta er einhver misskilningur vinstri manna. Ég hélt að það væri einhver hægri slikja á þessari stjórn svona undirliggjandi, en svo kemur á daginn að við erum bara með nýja útgáfu af stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar. Það er einhvern veginn myndin sem er að birtast okkur(Forseti hringir.) í þessari gríðarlegu skattasókn. Ég kem kannski betur inn á það síðar hvernig hún blasir við mér.