Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 65. fundur,  19. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:37]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Það er texti hér í nefndarálitinu sem ég hef pínulitlar áhyggjur af, með leyfi forseta, stendur hér:

„Gjöld á þau verðmæti sem íslensk sjávarútvegsfyrirtæki skapa við vinnslu haldast óbreytt. Þau verða áfram 33% af hagnaði. Er það mat meiri hlutans að þær vinnslur sem starfa á traustum rekstrarlegum grundvelli muni gera það áfram. Þá er það von meiri hlutans að þær vinnslur þar sem rekstrarlegur grundvöllur hefur verið lakari muni rétta úr kútnum gefist svigrúm til þess. Meiri hlutinn ítrekar þó þá afstöðu sína að þær rekstrarlegu ákvarðanir sem sjávarútvegsfyrirtæki kunna að taka í framtíðinni eru ekki endilega háðar efni þessa frumvarps. Meiri hlutinn hvetur atvinnuvegaráðuneytið til að fylgjast vel með þróun mála og bregðast við ef þurfa þykir.“

Þetta ber nú ekki vott um mikið sjálfstraust, að menn hafi í rauninni trú á þeim tillögum sem verið er að leggja til.

Hvað segir hv. þingmaður um þetta?